Stjarnan skellti Íslandsmeisturum Fram í upphafsleik tímabilsins, Valur kjöldró Hauka í KFUK-slagnum, nýliðar Selfoss unnu sjö marka sigur í Kórnum og KA/Þór fór stigalaust frá Eyjum.
Langþráð nýliðastig
Selfyssingar sýndu að þeim er alvara með því að fara í Kórinn og vinna flottan sjö marka sigur á HK-ingum, 25-32. Þetta var í fyrsta sinn í 921 dag sem nýliðar vinna leik í Olís-deild kvenna, eða síðan Afturelding sigraði HK 11. mars 2020. FH 2021 og Afturelding 2022 fengu ekki stig en Selfoss ætlar ekki að vera neitt fallbyssufóður. Katla María Magnúsdóttir og Rakel Guðjónsdóttir áttu stórleik og Ásdís Þóra Ágústsdóttir styrkir þær vínrauðu mikið.
Síung Hanna
Hanna Guðrún Stefánsdóttir hóf sitt 28. tímabil í meistaraflokk með því að hjálpa Stjörnunni að vinna sannfærandi sigur á Íslandsmeisturum Fram, 26-20. Hanna er fædd 1979 og er því 43 ára. Hún var fyrst í hóp í meistaraflokki 1995. Þá voru fæstar sem tóku þátt í leiknum í Mýrinni fæddar. Hanna er nánast orðin stofnun í íslenskri íþróttasögu og heldur áfram að skrifa sína ótrúlegu sögu.
Tölfræðingur umferðarinnar
Síðast þegar Ragnar Hermannsson þjálfaði meistaraflokk var HB Statz ekki til. Kannski gleymdist að segja honum frá tilvist HB Statz því Ragnar tók sjálfur tölfræði í leik Vals og Hauka. Hann var með blað og penna á hliðarlínunni og minnti um margt á starfsmann í vörutalningu. Vonandi er að gagnasöfnunin gagnist Haukum í næsta leik. Ekki er vanþörf á enda tapaði liðið með fimmtán mörkum gegn Val, 37-22.
Neyðaraðstoð til Fram
Öllum sem horfðu á leiki Fram gegn Val í Meistarakeppninni og Stjörnunni í upphafsleik Olís-deildarinnar mátti ljóst vera að meistararnir þurftu á hjálp að halda. Og þeir hafa sótt hana í formi tveggja erlendra skytta; Madeleine Lindholm frá Finnlandi og Tamöru Joicevic frá Svartfjallalandi. Það er eins gott fyrir Frammara að reynist öflugur liðsstyrkur ef þeir ætla að keppa að alvöru um titlana sem í boði eru.
Líkamsárás í Kórnum
Því miður fyrir Selfoss snerist stór hluti umræðunnar eftir sigurinn í Kórnum um brot Robertu Stropé á Valgerði Ýri Þorsteinsdóttur. Á 11. mínútu kýldi Roberta Valgerði hreinlega kalda en slapp á einhvern óskiljanlegan hátt við rautt spjald. Brotið var með þeim ljótari sem sést hafa í langan tíma, Valgerður var borin af velli og tók ekki frekari þátt í leiknum. Dómarar landsins hafa eflaust vökulla auga með Robertu eftir þetta ógeðisbrot.
Engin Rut, ekkert partí en samt von
Rut Jónsdóttir var fjarri góðu gamni vegna meiðsla þegar KA/Þór mætti ÍBV í Eyjum. Eins og við mátti búast var á brattann að sækja fyrir Akureyringa sem mæta mikið breyttir til leiks frá síðustu árum. Eyjakonur voru alltaf með frumkvæðið og lengst af góða forystu. En Akureyringar gáfust ekki upp og aðeins einu marki munaði á liðunum þegar uppi var staðið, 28-27. Lokatölurnar eru svolítið villandi en KA/Þór sýndi að þær geta spjarað upp að vissu marki án Rutar.
Sannfærandi meistarakandítatar
Valur kemur inn í tímabilið sem sigursælasta liðið og gegn Haukum sýndu Hlíðarendastúlkur að bjartsýnin er á rökum reist. Valskonur voru gríðarlega sannfærandi á allan hátt; markvarslan var góð, vörnin öflug og sóknin skilvirk (73 prósent skotnýting og bara fimm tapaðir boltar). Hildigunnur Einarsdóttir fór á kostum á línunni og örvhentu leikmennirnir nutu sín vel. Valur á eftir að fá miklu stærri og erfiðari próf en frammistaðan á föstudaginn gefur góð fyrirheit.