Þar segir að móðirin sé á fertugsaldri en sonur hennar á sextánda aldursári. Þau hafi bæði verið úrskurðuð í gæsluvarðhald til föstudagsins 23. september. Pilturinn er sökum ungs aldurs vistaður á stofnun ætluð fyrir ungmenni en gistir ekki fangageymslur meðan gæsluvarðhald varir.
Rannsókn málsins, sem unnið var í samstarfi lögreglu og tollgæslu, er sögð miða vel. Vegna rannsóknarhagsmuna geti lögregla ekki gefið frekari upplýsingar að svo stöddu.