Margrét Friðriksdóttir, ritstjóri miðilsins Frettin.is, var á leið til Úkraínu í því skyni að fjalla um kosningar leppstjórna í austur-Úkraínu, þegar henni var vísað úr vél Icelandair sem átti að fara til Munchen.
Öryggi farþega í fyrirrúmi
Guðni Sigurðsson, hjá samkiptasviði Icelandair, segir í samtali við fréttastofu að það sé matskennt hvenær gripið sé til þess ráðs að vísa farþegum úr vélum flugfélagsins. Í öllu falli þurfi þó mikið að koma til svo að flugfreyjur og þjónar vísi farþegum úr vélunum. Hann kveðst þó ekki geta tjáð sig um málefni einstakra farþega.
„Þetta er þó alltaf gert af öryggisástæðum, til dæmis ef erfitt er að fá farþega til að fylgja reglum um borð. Það er þá metið af starfsfólki. Flugfreyjum er oft mikið í mun að flug séu á réttum tíma og þess háttar. Þetta er ekki gert nema talin sé rík ástæða,“ segir Guðni.

Endar hjá dómstólum
Á hinn bóginn kveðst Margrét Friðriksdóttir aldrei munu hafa viðskipti aftur við flugfélagið eftir atvikið sem hún segir hafa verið algjörlega niðurlægjandi. Hún stendur föst á því að sökin liggi alfarið hjá Icelandair, nóg pláss hafi verið fyrir handfarangurstösku hennar, þvert á það sem áhöfn vélarinnar hélt fram. Þá kom að því að minna á grímuskyldu farþega.
„Ég bendi henni [flugfreyjunni] á að það sé nú engin grímuskylda á Íslandi. Ég var bara ósátt við þessa framkomu, að segja að það væri ekki pláss þegar það var pláss. Þetta er klárlega mál sem endar fyrir dómstólum, nema þau geri sáttaboð um miskabætur,“ segir Margrét.
Að sögn Guðna hjá Icelandair er grímuskylda í öllum flugum til Þýskalands, þar sem stjórnvöld þar í landi geri þá kröfu. Margrét segir flugfreyjurnar sem báðu hana um að bera grímu ekki hafa verið með grímu.
„Kannski voru þær bara ekki búnar að setja grímurnar upp,“ segir Guðni varðandi þetta atriði.
Verslaði í fríhöfninni og búin að panta annað flug
Margrét kveðst hafa samþykkt að bera grímuna og að færa handfarangurstöskuna í farangursrýmið. Allt kom fyrir ekki og að endingu var haft samband við lögreglu.
„Ég sagði bara allt í lagi, þá gerið þið það. Við biðum þarna í korter eftir lögreglunni. Ég útskýrði þetta bara fyrir þeim og þeim fannst þetta bara skrýtið. Þeir voru mjög hjálpsamir hjá lögreglunni og fóru með mig að fríhöfninni. Ég verslaði þar og pantaði mér svo bara leigubíl,“ segir Margrét og þvertekur fyrir að ljót orð hafi farið á milli hennar og áhafnar.
Þess ber að geta að samþykki flugstjóra þarf til að vísa farþega úr flugvél. Fram hefur komið að skilningur Margrétar hafi verið að flugstjóranum hafi fundist þetta hið einkennilegasta.
Nú stendur til að fara til Úkraínu þar sem samstarfskona Margrétar, Erna Ýr Öldudóttir er mætt til að flytja fréttir. Þær þáðu boð frá Konráð Magnússyni um þátttöku í ferð til hernumdra svæða í Úkraínu, þar sem leppstjórnir hafa boðað til atkvæðagreiðslu um innlimun í Rússland.