„Þetta var mikla verra en veðurspáin sagði til um. Þetta var eins og það gerist verst,“ segir Vilhjálmur Vernharðsson, staðarhaldi í Fjalladýrð í Möðrudal.
Greint var frá því fyrr í dag að fjölmargir ferðamenn sætu fastir á þjóðveginum um Möðrudalsöræfi. Björgunarsveitir frá Norður- og Austurlandi voru kallaðir til að aðstoða ferðamennina. Vilhjálmur var sá sem fékk fyrst boð um aðstoð, en þegar Vísir náði tali af honum í kvöld hafði hann verið að í nærri átta tíma, frá hádegi.

„Ég bý hérna svoleiðis að maður er alltaf fyrstur til. Ég er útbúinn í hvað sem er,“ segir Vilhjálmur sem telur að allt í allt hafi á þriðja hundrað ferðamanna verið komið til aðstoðar.
Samkvæmt upplýsingum frá björgunarsveitum var nokkrum fjölda fylgt niður í Mývatnssveit þar sem búið er að opna fjöldahjálparstöð fyrir þá sem ekki áttu bókað gistirými þar. Á fimmta tug var fluttur áleiðis til Egilsstaða
Fegnir ferðamenn á ónýtum bílum
Hjá Vilhjálmi í Fjalladýrð dvelja hins vegar 73 ferðamenn sem áttu ekki í önnur hús að venda eftir óveður dagsins. Mikið hvassviðri var, slydda og krap, auk grjótfoks. Meirihluti þeirra ferðamanna sem þurfti að koma til aðstoðar var á illa búnum bílum miðað við veðuraðstæður. Fjöldi bíla er hreinlega ónýtur eftir daginn.
„Þetta var mikla verra en veðurspáin sagði til um. Þetta var eins og það gerist verst. Við erum með sjoppu við gatnamótin. Það eru 25 bílar á planinu þar. Það er nánast enginn einasta rúða í neinum þeirra. Þeir eru allir ónýtir,“ segir Vilhjálmur.
Beðinn um að lýsa veðrinu segir hann það erfitt, svo slæmt hafi það verið.
„Það er ekkert hægt að lýsa þessu. Þetta er eins og alverst gerir. Það eru sjálfsagt tuttugu og bílar að fara frá okkur á vörubíl. Þeir keyra ekkert, þeir eru ónýtir,“ að sögn Vilhjálms. Mikið grjótfok var sem sprengt hefur rúður og farið illa með lakkið á bílunum sem um ræðir.

Þá eru á annan tug bíla enn eftir á víð og dreif við þjóðveginn þar sem ekki var annað hægt en að skilja þá eftir. Þeir sem dvelja hjá Vilhjálmi eru allt erlendir ferðamenn.
„Fólk er bara í sjokki en fegið að komið í hús.“