Samfélagsmiðillinn er sagður beinn samkeppnisaðili Rússlands við Facebook en miðillinn hefur verið fjarlægður úr AppStore á heimsvísu. Í tilkynningu frá VK komi fram að þeir símar sem hafi verið búnir að niðurhala forritinu áður en það var fjarlægt muni enn hafa aðgang að því. Guardian greinir frá þessu.
Aðgerð Apple á sér stað í kjölfar þess að Bretar beittu frekari refsiaðgerðum á Rússa vegna kosninga sem fóru fram í héruðunum Donetsk, Luhansk, Kherson og Zaporizhzhia í austur- og suðausturhluta Úkraínu. Boðað var til „þjóðaratkvæðagreiðslu“ um það hvort héruðin vildu tilheyra Rússlandi.
Atkvæðagreislan var fordæmd af Úkraínskum stjórnvöldum og sögðu þau hana ekki marktæka en greint var frá því að 99,23 prósent hafi greitt atkvæði með því að heyra undir Rússland.
Afsökunin sem Apple beri fyrir sig til þess að réttlæta það að fjarlægja VK úr AppStore sé að smáforritinu sé dreift af, í meirihlutaeign eða hannað af einstaklingum sem hafa verið beittir refsiaðgerðum af breskum stjórnvöldum.