Telja Ragnar Þór ekki geta valdið hlutverki forseta verkafólks Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 6. október 2022 14:39 Sólveig Anna og Ragnar Þór standa þétt saman í verkalýðsbaráttunni. Formenn ellefu verkalýðsfélaga innan ASÍ líst þó ekki á aðferðir þeirra. Vísir/Vilhelm Formenn ellefu verkalýðsfélaga undir hatti Alþýðusambands Íslands segja Ragnar Þór Ingólfsson, formann VR, ekki færan um að gegna hlutverki forseta ASÍ. Þau segja hann sækjast í völd og ætla að sitja með tvo hatta í komandi kjaraviðræðum. Þar sé skýr hagsmunaárekstur á ferðinni.
Í aðsendri grein á Vísi í dag lýsa formennirnir ellefu, auk ritara stjórnar Eflingar, yfir áhyggjum sínum í aðdraganda þings ASÍ sem hefst á mánudaginn. Ragnar Þór er einn í framboði til forseta sem óhætt er að segja að greinarhöfundum lítist illa á. Þingin eru haldin á tveggja ára fresti og eru æðsta vald í málefnum ASÍ. Hvert aðildarfélag á rétt á að senda a.m.k. einn fulltrúa á þing sambandsins. Á þingin mæta þrjú hundruð fulltrúar launafólks af öllu landinu til að móta heildarsamtökunum stefnu og starfsáætlun og velja þeim forystu. Formennirnir segja Ragnar Þór ekki kunna á lýðræðislega umræðu, grípa stöðugt til hótana og ganga á dyr fái hann sínu ekki fram. „Með skilyrðislausum stuðningi sínum við formann Eflingar í gegnum hópuppsagnir á skrifstofufólki hefur hann jafnframt glatað trúverðugleika sem talsmaður launafólks á opinberum vettvangi. Við berum vonir til þess að fram stígi frambjóðandi sem getur leitt fólk saman og hefur áhuga á að vinna fyrir öll aðildarfélögin og fyrir allt launafólk sem undir þau heyra,“ segir í greininni. Rætur í valdsækni Hópurinn gerir athugasemdir við að Ragnar Þór ætli ekki að sleppa tökunum á VR í komandi kjaraviðræðum þótt hann næði kjöri hjá ASÍ í næstu viku. Hann ætli að sitja áfram sem formaður samninganefndar VR. „Sú framganga formanns VR ætti þó að gefa auga leið að það er ekki bæði hægt að leiða kjaraviðræður fyrir hönd VR og koma samtímis fram sem forseti fyrir hönd allra landssambanda ASÍ í viðræðum við stjórnvöld og eftir atvikum atvinnurekendur. Hér verður ekki bæði sleppt og haldið, enda um augljósan hagsmunaárekstur að ræða,“ segir hópur formannanna. Þau segja síðastliðin misseri hafa einkennst af heiftarlegum innanbúðarátökum innan ASÍ. Átökum sem eigi rætur sínar í valdsækni Ragnars Þórs og hugmyndum hans og Sólveigar Önnu Jónsdóttur um að þar sem þau fari fyrir stærstu félögum ASÍ beri sambandinu að stjórnast af þeirra hugmyndum og vilja. „Þetta er ekki aðeins einfölduð sýn á lýðræðið, heldur einnig rangt því æðsta vald ASÍ er þing sambandsins, ekki formenn aðildarfélaga, hvort sem félögin sem þeir fara fyrir eru stór eða smá.“ Gangi endurtekið á dyr Þessi afstaða til ákvarðanatöku innan ASÍ hafi komið fram opinberlega og á fundum innan hreyfingarinnar. Bæði Ragnar Þór og Sólveig Anna hafi ítrekað haft í hótunum og jafnvel gengið á dyr ef annað fundarfólk taki ekki undir þeirra sjónarmið í stórum málum og smáum þegar í stað. „Nýlegast dæmið birtist þegar Ragnar tilkynnti framboð sitt til forseta ASÍ og hótaði því samtímis að ef hann fengi ekki stuðning í embættið þá myndi hann draga VR og Landsamband verslunarmanna út úr ASÍ, líkt og það væri í hans valdi að taka svo mikilvæga ákvörðun einn. Ragnar Þór sagði sig einnig úr miðstjórn, ásamt Vilhjálmi Birgissyni, þegar hugmyndir þeirra um að skerða framlög atvinnurekenda í lífeyrissjóði launafólks varð ekki ofan á í upphafi Covid-faraldursins. Þetta er eina tilfellið sem við vitum um að forystumenn í stéttarfélögum gangi á dyr vegna þess að ekki er fallist á tillögur þeirra um að skerða kjör launafólks.“ Ragnar Þór og Sólveig Anna hafi líka efnt til ágreinings þar sem hann sé ekki fyrir hendi eða þar sem lítið ber í milli. Allt í þeim tilgangi að ná yfirráðum og völdum. „Sem dæmi má nefna ítrekaðar umræður þeirra um SALEK, líkt og það sé viðfangsefni hreyfingarinnar núna. Í því samhengi er rétt að benda á þá staðreynd að það voru þingfulltrúar á Þingi ASÍ árið 2016 sem slógu SALEK-hugmyndir og umræðu út af borðinu og um það var nokkuð víðtæk samstaða meðal þingfulltrúa.“ Þurfi fólk með trúverðugleika Þá gagnrýna formennirnir harðlega viðbrögð Ragnars Þórs og Vilhjálms Birgissonar, formanns Starfsgreinasambandsins, við hópuppsögnum skrifstofufólks á skrifstofu Eflingar liðinn vetur. „Forsagan var sú að Sólveig Anna hafði sagt af sér embætti sem formaður Eflingar þar sem starfsfólk félagsins vildi ekki tjá sig opinberlega með þeim hætti sem henni þótti rétt og henta sér. Hún bauð sig svo aftur fram til embættis og hluti af kosningabaráttunni var að ausa starfsfólk skrifstofunnar svívirðingum,“ segir hópurinn. „Um leið og hún komst til valda að nýju rak hún allt starfsfólkið í nafni hagræðingar og jafnlaunavottunar og auglýsti störfin aftur. Svo alvarlegt er þetta mál að VR hefur dregið Eflingu fyrir Félagsdóm til að gæta hagsmuna sinna félagsmanna. Ragnar Þór hefur hins vegar aldrei fordæmt uppsögnina og þá niðrandi umræðu um skrifstofufólk sem henni fylgdi. Þvert á móti hefur hann lýsti yfir stuðningi við gerandann í málinu til embættis varaforseta ASÍ. Valdabandalagið er formanni VR mikilvægara en félagsfólk VR.“ Hópurinn segir verkalýðshreyfinguna hafa lagt grunninn að þeim lífsgæðum sem við búum við á Íslandi í dag. „Forsendan hefur verið að geta komið sameinuð fram gagnvart atvinnurekendum og stjórnvöldum í stórum réttindamálum. Þannig varð helgarfríið til á Íslandi, þannig eignuðumst við sumarfrí, veikindarétt og fæðingarorlof, svo aðeins nokkur dæmi séu nefnd. Verkefnin fram undan eru ærin: baráttan gegn ójöfnuði og launaþjófnaði og krafan um styttri vinnuviku og átak í húsnæðismálum eru þar á meðal. Við þurfum að hafa fólk í stafni sem getur unnið að þessum málum og hefur til þess bæði styrk og trúverðugleika.“ Drífa lýsti erfiðum samskiptum Kristján Þórður Snæbjarnarson er starfandi forseti ASÍ eftir að Drífa Snædal sagði sér sem forseti í ágúst. Ragnar Þór, sem ætlar sér stöðu forseta, hefur lýst yfir stuðningi við Kristján Þórð Snæbjarnarson, Sólveigu Önnu Jónsdóttur og Vilhjálm Birgisson í embætti varaforseta hjá ASÍ. Drífa lýsti samskiptum sínum við Ragnar Þór og Sólveigu Önnu í viðtali í ágúst. Hún sagði samskiptin við formenn VR og Eflingar hafa gert störf hennar á köflum óbærileg. Hún hefði ekki getað ímyndað sér að sitja áfram við þessar aðstæður.
Kjaramál ASÍ Ólga innan Eflingar Mest lesið Engar reglur á Íslandi um hve mörg börn sæðisgjafar megi eignast Innlent Hafþór keppir í Rússlandi: „Auðvitað veldur þessi ákvörðun ákveðnum vonbrigðum“ Innlent Morðhótunum í garð kvenna fari fjölgandi Innlent Rafmennt í samstarf og kaupir eignir þrotabúsins Innlent Tveir létust í skotárás á háskóla í Flórída Erlent Einhleypir karlmenn standa verst Innlent Hafa áhyggjur af því að sýn Veitna á Heiðmörk sé of þröng Innlent Fjórir létust þegar kláfferja hrapaði á Ítalíu Erlent Kartöflugeymsla orðin að menningarhúsi Selfyssinga Innlent Háværar framkvæmdir stöðvaðar Innlent Fleiri fréttir Engar reglur á Íslandi um hve mörg börn sæðisgjafar megi eignast Morðhótunum í garð kvenna fari fjölgandi Rafmennt í samstarf og kaupir eignir þrotabúsins Kartöflugeymsla orðin að menningarhúsi Selfyssinga Hafa áhyggjur af því að sýn Veitna á Heiðmörk sé of þröng Skortur á reglum um sæðisgjafir og menningarmiðstöð í kartöflugeymslu Háværar framkvæmdir stöðvaðar Hafþór keppir í Rússlandi: „Auðvitað veldur þessi ákvörðun ákveðnum vonbrigðum“ Rannsaka ólöglegt fiskeldi Áformin dragi verulega úr möguleikum til útivistar Geti haft í för með sér „ónæði, mengun og álag á fráveitu“ Ofbeldi í nánum samböndum og mótmæli á Tenerife Einhleypir karlmenn standa verst Misskilnings gætt um breytingar á lögum um innritun í framhaldsskóla Andstaða forstjóra Flugleiða við Cargolux réð því að hluturinn fór Bað lögreglu um að bjarga kettinum úr klóm nágrannans Vantar sjálfboðaliða til að laga 500 hjól handa efnaminni fjölskyldum „Umhverfi sem gerir eðlilegt og lögmætt flug að forréttindum stóru rekstraraðilanna“ Nafn mannsins sem lést í Garðabæ Af Alþingi til Fjallabyggðar „Vísbendingar um að fjárhagur sé að vænkast hjá borginni“ „Þeir voru fullir af hatri á meðan þeir lömdu mig“ Engin mygla í 200 húsum byggingameistara á Selfossi „Með allra besta móti miðað við árstíma“ Jónas Ingimundarson er látinn Búið að loka hringveginum vegna ófærðar Sex hópnauðganir til rannsóknar og lengri opnunartími sundlauga Von á fallegum, litríkum og kvikum norðurljósum í kvöld Sex hópnauðganir á borð lögreglu á árinu Steindór Andersen er látinn Sjá meira