Finnbjörn Hermannsson, formaður Byggiðnar, lagði fram tillöguna ásamt fleiri þingfulltrúum. Hann var fyrsti flutningsmaður en umræður um tillöguna stóðu yfir í um hálftíma. Tillagan var svo samþykkt rétt í þessu miklum meirihluta eins og áður segir.
Upplausn varð á þingi ASÍ í gær þegar Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, og Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins hættu við framboð til miðstjórnar ASÍ og gengu út af þinginu. Tvísýnt var því hvort stjórnarkjör hefði getað farið fram í dag. Heimildir fréttastofu herma að um helmingur þingfulltrúa VR hafi mætt á þingið í dag en sárafáir þingfulltrúar Eflingar.
Með frestuninni verður Kristján Þórður Snæbjarnarson forseti félagsins í komandi kjaraviðræðum. Hann var fyrsti varaforseti er Drífa Snædal sagði af sér embættinu í haust. Í lokaræðu sinni á þinginu sagði hann að boðað verði til nýs þings eigi síðar en fyrir lok apríl.
Skylda að taka samtalið
Í kjölfar atkvæðagreiðslunnar segir Kristján Þórður í samtali við fréttastofu að taka þurfi samtalið og leita leiða til að þétta raðirnar fram á við.
„Það er okkar félagsfólk sem við vinnum fyrir og það er okkar skylda að taka samtalið,“ segir Kristján Þórður.
Hann segist treysta sér fyllilega til þess að reyna að ná sáttum innan sambandsins og vonast til að geta það.
„Þetta mun samt taka tíma og við verðum að gefa okkur þann tíma,“ bætir Kristján Þórður við. „Það er ekki óskastaða að vera sundruð. Samningsumboð er auðvitað hjá félögunum en ég hefði viljað ná breiðari samstöðu.“

Nú sé það forystunnar að finna hvar viljinn liggur. Formlegar viðræður við vinnuveitendur eru þegar hafnar hjá flestum samningsaðilum. Kristján Þórður segir að á næstu vikum muni þær fara á fullt skrið. Finna megi mismunandi kröfur hjá VR og Eflingu, samanborið við önnur aðildarfélög. Samt sem áður sé hægt að sjá sömu áherslur hjá öllum félögum.
Voru þó sammála um að fresta
Ólöf Helga Adolfsdóttir, sem bauð sig fram til forseta, greiddi atkvæði gegn tillögunni. Hún segist hafa viljað klára þingið í dag.
„Ég hefði viljað hlusta á aðildarfélögin fyrir komandi kjaraviðræður. Það eru húsnæðismálin sem brenna mest á okkur, svo eru það lífeyrismálin“
Hún vill bera klæði á vopnin þannig að stóru aðildarfélögin, Efling og VR, séu áfram innan ASÍ.
„En það er alveg á hreinu að það er ekki gert einhliða, báðir aðilar verða að koma að borðinu. Þannig við verðum bara að vona að þau séu tilbúin til þess þegar þingið heldur áfram í vor.“
Hún hafnar því að hafa skoðað einkapósta Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar og segir hana hafa fengið tvær vikur til að hreinsa pósthólfið.
„Það var nokkuð góð eining um að fresta þinginu og það er jákvætt. Við gátum allavega verið sammála um það.“
Hún vonast því til að menn nái að snúa bökum sem fyrst saman enda sé hreyfingin sterkari þegar hún standi saman.