Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær sagði Matthildur Óskarsdóttir frá því að móðir hennar, Vildís Garðarsdóttir, hafi beðið eftir plássi á hjúkrunarheimili síðan í febrúar á þessu ári þegar hún var lögð inn á spítala vegna blóðtappa.
Vegna frekari veikinda var Vildís færð upp á Landakot og þaðan á Vífilsstaði, eftir að hún fékk það mat að hún gæti ekki farið aftur heim.
Meira en þrjú hundruð er á biðlista til að komast á hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðin og hafa aldrei jafn margir beðið eftir plássi.
„Þetta er náttúrulega því miður ekkert nýtt af nálinni og biðlistarnir virðast bara hafa lengst á síðustu árum. Þeta orsakast af því að uppbygging á hjúkrunarheimilum er ekki nógu hröð og ríki og sveitarfélög hafa ekki tekið saman nógu föstum höndum til að leysa þennan vanda,“ segir Sandra Hlíf Ocares, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Velferðarráði Reykjavíkurborgar.
Kominn sé tími til að málið sé tekið föstum tökum.
„Maður hefði haldið að núverandi meirihluti í Reykjavík, þar væru hæg heimatökin, þar sem Framsóknarmenn sitja við borðið í heilbrigðisráðuneytinu og einnig við borðið í Reykjavík,“ segir Sandra.
En hvað þarf að gerast svo úr verði bætt?
„Það þarf að taka pólitíska ákvörðun um það að setja þessi mál í forgang og hraða uppbyggingu á þessum heimilum þannig að fólk komist í þá þjónustu sem það þarf,“ segir Sandra Hlíf.