Ef litið er til talna hjá AP má sjá að Demókratar hafa tryggt sér 176 sæti og Repúblikanar 204 í fulltrúadeildinni. Mjórra er á munum í baráttunni um öldungadeildina, þar hafa Demókratar tryggt sér 48 sæti og Repúblikanar 49. Þar þurfa Repúblikanar að ná 51 sæti til þess að ná meirihluta en Demókratar 50 þar sem varaforsetinn er að þessu sinni Demókrati.
Telma Tómasson, fréttamaður okkar ræddi við Silju um stöðuna nú í kvöldfréttum.
Það lítur út fyrir að Demókratar haldi velli í öldungadeildinni, telst það mikill sigur fyrir þau og Biden?
„Já þetta er í raun og veru mjög óvæntur og mikill árangur. Öldungadeildin var alltaf frekar tæp en það að halda 50 jafnvel fara upp í 51, það er betri árangur heldur en ég held að flestir hafi búist við. Með síðan þeim svona varnarsigri að missa ekki meira úr fulltrúadeildinni, það er mjög óvenjulegt og það er mjög fáheyrt líka að minnihlutinn, flokkurinn í stjórnarandstöðu nái ekki tökum á báðum deildum þingsins. Sérstaklega þegar forseti er jafn óvinsæll eins og Biden er þannig að Biden held ég að hljóti að fagna varnarsigri í dag,“ sagði Silja Bára.
Svo er það Donald Trump, hvað segja þessar niðurstöður um hugsanlegt framboð hans og sigurlíkur ef það gengur eftir?
„Það virðist vera sem að Trump hafi í raun og veru laskað framboð Repúblikana mjög víða. Það eru kandídatar sem hann studdi og í raun og veru kom í framboð í gegnum prófkjör flokksins sem að eru að tapa, til dæmis í Pennsylvaníu. Þannig að það er líklegt að það verði horft kannski aðeins öðruvísi á hann heldur en hefur verið gert oft áður,“ sagði Silja Bára.
Í kvöldfréttum kom fram að getgátur væru uppi um það að Repúblikaninn Ron DeSantis, ríkisstjóri í Flórída, sem hlaut endurkjör í kosningunum, myndi bjóða sig fram til forseta. Jafnvel gegn Donald Trump sjálfum.
Silja segir greinilegt að Trump sé hræddur við það að DeSantis fari á móti honum, hann óttist að tapa.
„En hvort að Trump kostar flokkinn í raun og veru meira í næstu kosningum heldur en hann hefur fram að færa, það er stóra spurningin,“ segir Silja Bára að lokum.
Hér að ofan má sjá viðtalið við Silju en það hefst á 02:15.