Wilson er meðlimur samtakanna Arctic Basecamp, sem vinna að því að vekja athygli á áhrifum loftslagsbreytinga á Norðurheimskautið og afleiddar afleiðingar þeirra. Vísir fjallaði nýverið um samtökin þegar Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú, gisti í tjaldi fyrir utan Hörpu á vegum samtakanna.
Wilson, eða Rainnfall Heat Wave Rising Sea Levels Wilson líkt og hann kallar sig nú, segir að með því að breyta nafni sínu ætli hann að vekja athygli á loftslagsvánni og þeirri hættu sem bráðnun Norðurheimskautsins veldur um allan heim. Hann tilkynnti nafnbreytinguna í myndskeiði á Twitter. Hann hefur þó ekki getað breytt nafni sínu á þeim miðli vegna nýrra reglna eftir að Elon Musk tók við völdum þar á bæ.
Join me @ @ArcticBasecamp in bringing attention to the melting issue. We need world leaders to take action at COP 27!
— RainnWilson (@rainnwilson) November 9, 2022
The Arctic is melting at Millions of Liters per second, yet this problem can t seem to make a name for itself, so we ll make a name for it.
Go to link in bio pic.twitter.com/TgEG84fOmQ
Nýja nafnið mætti þýða á íslensku sem Rigning Hitabylgja Hækkandi Sjávarstaða Wilson, en það eru allt afleiðingar hækkandi hitastigs í heiminum. Fyrir utan Wilson, auðvitað.
Þá leggur hann til að fleiri stjörnur breyti nöfnum sínum og stingur meðal annars upp á nöfnunum Cardi The Arctic B Melting, Harrison Why Not Drive An Electric? Ford og Leonardo Di-Polar Ice Caprio Are Melting.
Rainnfall hefur komið hingað til lands nokkrum sinnum, meðal annars til þess að leika í Ráðherranum, og telst því til svokallaðra Íslandsvina. Þó fór hann heldur ófögrum orðum um landið á Instagram í sumar.