Atvikið átti sér stað hinn 10. júní síðastliðinn en Héraðsdómur Norðurlands eystra kvað upp dóm í málinu fyrir helgi.
Atvik voru þau að ákærði hafði fært almenningsbekk af Hamarskotstúninu á Akureyri og sett hann á göngustíg sem liggur um svæðið. Brotaþoli, sem er þroskaskertur, gerði athugasemd við þetta og ýtti við ákærða sem féll á bekkinn.
Við það reiddist ákærði, stóð upp af bekknum og var upphaflega sagður hafa kýlt brotaþola í andlitið. Því næst hafi hann sparkað undan brotaþola fótunum með þeim afleiðingum að hann datt í jörðina. Brotaþoli axlarbrotnaði og hlaut brotna framtönn og skrámur við árásina.
Við fyrirtöku málsins breytti ákæruvaldið ákærunni á þann veg að tekið væri út að ákærði hafi kýlt brotaþola í andlitið. Maðurinn játaði brotið eftir breytingu ákæruvaldsins.
Við ákvörðun refsingar var litið til þess að ákærði hafi gengist undir sátt fyrir vörslur fíkniefna fyrr á árinu. Dómari taldi honum það til hegningarauka og taldi hæfilega refsingu þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi. Ákærða ber enn fremur að greiða brotaþola 600 þúsund krónur í miskabætur, rúmar 200 þúsund krónur vegna fjártjóns og tæpar 600 þúsund krónur í sakarkostnað.