Arnór meðal markahæstu manna í Evrópudeildinni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. nóvember 2022 14:31 Arnór Snær Óskarsson hefur spilað vel í Evrópudeildinni í vetur. vísir/vilhelm Eftir fyrstu þrjár umferðirnar í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í handbolta karla er Valsmaðurinn Arnór Snær Óskarsson meðal markahæstu leikmanna keppninnar.
Arnór skoraði fimm mörk þegar Valur laut í lægra haldi fyrir Flensburg, 32-37, í B-riðli í fyrradag. Þetta var fyrsta tap Valsmanna í Evrópudeildinni í vetur. Arnór hefur alls skorað tuttugu mörk í fyrstu þremur leikjum Vals í Evrópudeildinni. Aðeins sex leikmenn í keppninni hafa skorað meira. Pol Valera Rovira, leikmaður spænska liðsins Granollers, er markahæstur í keppninni með 25 mörk. Þar á eftir koma Thomas Sommer Arnoldsen (Skanderborg-Aarhus) og Benedek Éles (BAL Veszprém) með 23 mörk hvor. Þrír leikmenn hafa svo skorað 21 mark. Óðinn Þór Ríkharðsson, leikmaður svissnesku meistaranna í Kadetten Schaffhausen) er í 11.-16. sæti yfir markahæstu leikmenn Evrópudeildarinnar með nítján mörk en aðeins í tveimur leikjum. Yngri bróðir Arnórs, Benedikt Gunnar, er næstmarkahæstur Valsmanna í Evrópudeildinni með átján mörk. Níu þeirra komu gegn Flensburg. Magnús Óli Magnússon hefur svo skorað sextán mörk. Næsti leikur Vals í Evrópudeildinni er gegn PAUC í Frakklandi á þriðjudaginn. Bæði lið eru með fjögur stig í B-riðlinum.
Evrópudeild karla í handbolta Valur Mest lesið Varð pabbi sjö mánuðum eftir að hann lést Sport Glórulaus tækling Gylfa Þórs Íslenski boltinn Gæti HSÍ orðið gjaldþrota: „Okkar að sjá til þess að svo verði ekki“ Handbolti Sjáðu markið umdeilda í Garðabæ: „Ekki var hann hræddur við Örvar?“ Íslenski boltinn Landsliðskonum borist skilaboð og sagðar styðja Ísrael Handbolti Borgaði ósáttum aðdáanda eftir rothögg Stefáns Inga Fótbolti „Vælum og öskrum þó við meiðum okkur ekki neitt“ Íslenski boltinn „Síðast þegar ég sá svona atriði var það Petersson í Austurríki“ Handbolti „Er allavega engin þreyta í mér“ Fótbolti Hittu misáhugasama Íslendinga: „Ég á selló, ég fylgist ekki með fótbolta“ Fótbolti Fleiri fréttir Landsliðskonum borist skilaboð og sagðar styðja Ísrael Tekjur Handboltapassans tvöfaldist: „Mjög raunhæf áætlun“ Gæti HSÍ orðið gjaldþrota: „Okkar að sjá til þess að svo verði ekki“ „Síðast þegar ég sá svona atriði var það Petersson í Austurríki“ Íslandsmeistararnir örugglega í undanúrslit Uppgjörið: Haukar - Fram 25-28 | Framarar í undanúrslit Ekki með gegn Ísrael þar sem hún er ólétt Ísland - Ísrael: Aðgengi fjölmiðla að íslenska liðinu til skoðunar „Höfum orðið þess áskynja að það sé mikil ólga útaf leiknum“ „Ferli sem fer í gegnum yfirvöld en ekki íþróttahreyfinguna“ Lögreglan bannar áhorfendur á leikjum Íslands gegn Ísrael Stórleikur Andra Más dugði ekki gegn Magdeburg Jón Halldórsson kjörinn formaður HSÍ Björgvin Páll lokaði markinu og Valsmenn komnir í 1-0 Melsungen enn með í titilbaráttunni „Beint upp í rútu og ná í annan sigur í dag“ Uppgjörið: Afturelding - ÍBV 32-30 | Mosfellingar unnu fyrsta slaginn FH og Fram byrjuðu úrslitakeppnina á sigri Elín Klara markadrottningin í ár en gaf líka flestar stoðsendingar Júlíus: Mér finnst að kvennalið Gróttu eigi að vera á þessum stað Úrslitakeppnin klár í Olís deild kvenna Uppgjör: ÍR-Grótta 31-26 | ÍR sendi Gróttuna niður í Grillið Janus Daði og félagar slógu PSG út úr Meistaradeildinni Kristján Örn og félagar töpuðu stigi í Íslendingaslag Tryggvi og félagar sendu Ólaf í sumarfrí Ómar Ingi markahæstur í sigri í Meistaradeildinni Súrt kvöld fyrir íslensku landsliðskonurnar „Eins og draumur að rætast“ Íslendingalið í átta liða úrslit Evrópudeildarinnar Þórey aftur inn í landsliðið: „Þurftum bara aðeins að hreinsa andrúmsloftið“ Sjá meira