Fundarhöld hjá ríkissáttasemjara stóðu til um áttaleytið í gærkvöldi. Dagurinn í dag verður helgaður störfum vinnuhópa sem byrjuðu strax klukkan níu í morgun. Elísabet S. Ólafsdóttir aðstoðarsáttasemjari hefur sent út fundarboð um nýjan sáttafund hjá ríkissáttasemjara sem er á dagskrá klukkan 10.00 í fyrramálið.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir að það sé erfitt á þessari stundu að meta hvernig gekk á sáttafundi í gær.
„En við erum að ræða saman og það er jákvætt“
Það ríki skilningur á þeim fjölþætta vanda sem launafólk glími við um þessar mundir.
„Við erum með leigumarkaðinn og ákveðin leigufélög sem haga sér með skelfilegum hætti og svo erum við með fjölda fólks sem er með óverðtryggð lán á breytilegum vöxtum, þarna hefur greiðslubyrði hjá þessum hópum aukist um tugi þúsunda og jafnvel hundrað þúsund eða meira og við erum augljóslega ekki að ná utan um allan þennan vanda með kjarasamningi sem snýr bara að launaliðnum, það þarf meira að koma til. Það er eitt af því sem við erum að ræða bæði í vinnuhópunum og að reyna að finna lausnir eða leiðir til þess að ná utan um mjög fjölþættan vanda sem við stöndum frammi fyrir.“
Ragnar hefur vakið máls á framgöngu leigufélagsins Ölmu sem boða hækkun á leiguverði sem nemur 75 þúsund krónum. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra gagnrýndi framferði félagsins á þinginu í morgun og sagði óforsvaranlegt að ganga jafn langt gagnvart fólki og gert var í því tilfelli sem Ragnar fjallaði um.
Honum finnist líklegt að framhaldið ráðist á morgun.
„Mér finnst það líklegt, svona miðað við þann tíma sem við höfum, það þar að kynna svona samning fyrir okkar baklandi og félagsfólki, það þarf að fara með svona samninga í kosningu og það eru fjölþætt önnur mál eins og sérkjarasamningar sem bæði iðnaðarmenn og við erum með inni í okkar samningum sem þarf að ganga frá líka. Þetta er ekki bara einhver launaliður, þetta er stór pakki og eins og ég segi, ég held það hljóti að skýrast á morgun í hvaða fasa við munum fara í í framhaldinu.“
Ragnar segir að ekki sé tímabært að segja opinberlega hvernig gangi í viðræðum.
„En við erum að ræða saman, það er verið að funda um ýmis mál og eina sem ég hef sagt í sjálfu sér í þessu er að ef við ætlum að reyna að landa skammtímasamningi þá er tíminn að hlaupa frá okkur og ef hann hleypur frá okkur þá erum við bara komin í annan fasa sem er að ræða þá langtímasamning.“