Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg kemur fram að tillögurnar taka til skipan í stjórnir Orkuveitu Reykjavíkur, Félagsbústaða hf. og Faxaflóahafna sf. og hefur þeim verið vísað til borgarstjórnar sem mun taka þær fyrir á fundi næstkomandi þriðjudag. Kosning í fimm manna stjórn Félagsbústaða kallar á breytingu á samþykktum.
Samkvæmt eigandastefnunni skal í vinnu tilnefningarnefndar litið til þess að stjórn, nefnd eða ráð sé hverju sinni saman sett af einstaklingum í sem jöfnustum kynjahlutföllum, sem hafa breiða þekkingu og bakgrunn, svo sem með tilliti til aldurs og reynslu, sem nýtist viðkomandi fyrirtæki og eftir atvikum hagaðilum þess hverju sinni, og sé litið til hlutverks og verkefna fyrirtækisins, rekstrar þess og framtíðarsýnar.
Við kosningu í stjórnir einkaréttarlegra fyrirtækja skal miðað við að meirihluti stjórnarmanna sé óháður fyrirtækinu og stjórnendum þess.
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir forseti borgarstjórnar segir ákvörðun borgarráðs marka tímamót.
„Ný eigandastefna markar nýja tíma þar sem borginn innleiðir góða stjórnarhætti og armslengdarsjónarmið við tilnefningar í stjórnir fyrirtækjanna í þverpólitísku samráði. Það er lögð áhersla á fagleg vinnubrögð, gegnsæi og aukna upplýsingamiðlun.”
Stjórn Faxaflóahafna:
- Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður
- Hildur Björnsdóttir
- Már Másson – óhaður
- Ragnheiður H. Magnúsdóttir – óháð
- Varamenn: Friðjón Friðjónsson, Pawel Bartozcek, Íris Baldursdóttir – óháð, Sigurbjörg Ásta Jónsdóttir – óháð
Stjórn Félagsbústaða:
- Haraldur Flosi Tryggvason, formaður
- Magnús Nordal
- Ellý Alda Þorsteinsdóttir – óháð
- Haraldur Flosi Tryggvason – óháður
- Ragnheiður Björk Halldórsdóttir – óháð
- Varamenn: Helgi Áss Grétarsson, Rannveig Ernudóttir, Kolbrún Garðarsdóttir – óháð, Steinunn Bergmann – óháð, Arent Orri Jónsson
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur:
- Skúli Þór Helgason
- Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir
- Gylfi Magnússon, formaður – óháður
- Vala Valtýsdóttir, varaformaður – óháð
- Þórður Gunnarsson – óháður
- Varamenn: Björn Gíslason, Sara Björg Sigurðardóttir, Auður Hermannsdóttir – óháð, Páll Gestsson - óháður, Ragnheiður Björk Halldórsdóttir – óháð
Brynhildur Davíðsdóttir fráfarandi formaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur gaf ekki kost á sér í endurkjör.