Frumvarpinu er í grunninn ætlað að rýmka þau skilyrði sem þarf til að reka leigubíl, meðal annars með því að afnumdar verði takmarkanir á fjölda starfsleyfa.
Hagsmunasamtök leigubílstjóra hafa mótmælt frumvarpinu harðlega, þeir vísa meðal annars til þess að breytingarnar kyndi undir ofbeldi gegn leigubílstjórum og skili almenningi verri þjónustu.
Það hefur ríkt hálfgert ófremdarástand í leigubílamálum á höfuðborgarsvæðinu síðustu daga. Löng bið eftir bíl virðist normið og dagurinn í dag var sérstaklega þungur hjá Hreyfli. 150 bílar voru úti á götum borgarinnar frá fyrirtækinu á þriðja tímanum en eru venjulega um 200. En það er erfið færð sem skýrir þann vanda, ekki verkfall bílstjóra. Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu Hreyfils, í það minnsta.
Ofbýður framkoman
Daníel Einarsson formaður Bandalags íslenskra leigubílstjóra, félags sem telur um 400 félagsmenn, segir að hundruð hafi lagt niður störf í dag, þar af einhverjir hjá Hreyfli.
Það er búið að samþykkja frumvarpið, það var gert á föstudag. Hverju eruð þið að reyna að ná fram með þessum mótmælum núna?
„Við reyndum að ná tali af ríkisstjórninni með ákalli af því að þetta gerðist svo hratt. Þessu var flýtt í gegnum þing án þess að gefa okkur færi á að andmæla fyrstu umræðu,“ segir Daníel við fréttastofu á skrifstofu félagsins í dag, þar sem nokkrir leigubílstjórar í verkfalli komu saman í dag.
Boðið var upp á kaffi og kleinur og mönnum var heitt í hamsi.
„Ég er bara að sýna samstöðu með félagsmönnum,“ segir Gunnlaugur Ingvarsson, leigubílstjóri. „Þetta er ekki á hverjum degi sem leigubílstjórar gera svona lagað. En okkur er svo ofboðið hvernig hefur verið komið fram við okkur. Hvernig stjórnvöld hafa hreinlega valtað yfir okkur eins og formaðurinn okkar hefur lýst.“