Ragnar hefur glímt við fíknivanda í gegnum tíðina. Hann hefur talað mjög opinskátt um sína fortíð og verið iðinn við að deila reynslu sinni í von um það hjálpi öðrum. Í september síðastliðnum stofnaði hann ásamt fleirum Viðmót, ný notendasamtök til að bæta lífsgæði fíkla og berjast fyrir umbótum.
Það vakti mikla athygli þegar hann birti myndskeið á facebooksíðu sinni fyrr í mánuðinum þar sem hann stóð fannbarinn í frostinu fyrir utan gistiskýlið á Grandagarði.
Borgar sig að vera einlægur
En nú virðist vera að birta upp hjá Ragnari.
„Ég fékk sem sagt vinnu hjá ferðaþjónustufyrirtæki núna rétt fyrir jól,“ segir Ragnar í samtali við Vísi og bætir við að þetta sé þó langt frá því að vera frumraun hans í ferðamannageiranum. Hann er með meirapróf og hefur starfað með hléum innan geirans undanfarin sex ár.
Ragnar segist vera á hárréttri hillu í ferðaþjónustustarfinu og nýtur þess í botn. Hann hefur nú þegar farið í nokkra túra með erlendum ferðamönnum og sýnt þeim Gullfoss, Geysi og Þingvelli. Svo eru Norðurljósaferðirnar alltaf vinsælar.
„Ég tek starfinu mjög alvarlega, enda eru leiðsögumenn að mörgu leyti fulltrúar Íslands og við þurfum að koma vel fyrir og skilja eftir góðar minningar hjá ferðamönnunum sem heimsækja landið okkar.“
Hann segist vera afar þakklátur ferðaþjónustufyrirtækinu fyrir að gefa honum tækifæri og hjálpa honum þannig að skapa sér betra líf.
„Ég er bara þannig að ég vil vera með allt mitt upp á borði og ekki skammast mín fyrir neitt. Vera bara opinn og heiðarlegur og koma hreint fram. Ég hef líka komist að því í gegnum tíðina að Íslendingar eru mjög „forgiving“ og kunna að meta það þegar maður er einlægur, stígur fram og viðurkennir mistök.“
Gefst ekki upp
Ragnar hefur sem fyrr segir verið heimilislaus í langan tíma og hefur þurft að reiða sig á gistiskýli Reykjavíkurborgar.
Hann þráir ekkert frekar en að finna íbúð til leigu, „einhverja litla og sæta“ eins og hann orðar það. En eins og flestir vita er leigumarkaðurinn í Reykjavík erfiður, leiguverðið oft á tíðum svimandi hátt og margir um hverja íbúð. Ragnar ætlar þó ekki að gefast upp og segist taka glaður við öllum ábendingum um lausa leiguíbúð.
„Ég ætla að halda áfram að berjast. Bæði fyrir mig og aðra.“