Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins óskuðu eftir því 20. desember síðastliðinn að samningur borgarinnar við Sýn hf. um rekstur ljósleiðara yrði ræddur á fundi borgarstjórnar en beiðninni var hafnað af forsætisnefnd.
„Í kjölfarið sendi ég inn kvörtun sveitarstjórnarráðuneytisins því ég tel að það sé skýlaus réttur borgarfulltrúa að setja mál á dagskrá borgarstjórnar,“ segir Marta Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
Koma í veg fyrir eftirlit með rekstri fyrirtækja borgarinnar
Ljósleiðarinn er í eigu Reykjavíkurborgar og Orkuveitu Reykjavíkur, sem borgin á 93 prósenta hlut í.
„Okkur ber að hafa eftirlit með fyrirtækjum Reykjavíkurborgar og verðum að geta rætt þau mál innan borgarstjórnar og mál fyritækja hafa oft verið rædd á þeim vettvangi,“ segir Marta.
Hún óskaði aftur eftir að málið yrði sett á dagskrá borgarstjórnarfundar, sem fer fram á morgun, en var hafnað af meirihluta í forsætisnefnd á fundi hennar síðastliðinn föstudag. Í kjölfarið lagði hún fram bókun þar sem hún sakaði meirihlutann um einræðistilburði.
„Með höfnuninni er verið að koma í veg fyrir að við getum gegnt ríkustu skyldu borgarfulltrúa sem er samkvæmt lögum eftirlitshlutverkið. Okkur ber að hafa eftirlit með rekstri á fyrirtækjum borgarinnar,“ segir Marta.
Leyndarhyggjan mikil
Fulltrúar meirihlutans í nefndinni töldu að tímasetning umræðunnar þyrfti að vera hentug og nefndu í bókun að stundum yrði ekki hjá því komist að fresta ummræðu eða jafnvel taka ákvörðun um að slík umræða færi fram fyrir luktum dyrum.
„Við höfum verið að óska eftir ýmsum gögnum varðandi þetta mál, þeir borgarfulltrúar sem hafa komið að þessu máli - annað hvort setið í stjórn orkuveitunnar eða í svokölluðum rýnihóp Ljósleiðarans, þar sem ég sit - sem við höfum ekki fengið aðgang að. Þess vegna lít ég svo á að hér sé um mikla leyndarhyggju að ræða ef borgarfulltrúum er ekki treyst til að sjá gögn sem varða þetta veigamikla og stóra mál sem varðar alla skattgreiðendur í Reykjavík,“ segir Marta.
„Þetta er auðvitað alveg fordæmalaust í sögu Reykjavíkurborgar að hafna því að taka mál á dagskrá enda fer það gegn sveitarstjórnarlögum og samþykktum um stjórn Reykjavíkurborgar.“
Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins í meirihluta og varafulltrúi í forsætisnefnd, gat ekki orðið við beiðni fréttastofu um viðtal fyrir hádegisfréttir og vísaði í fyrrnefnda bókun meirihlutans. Þá svaraði hann því spurður um við hvaða tilefni þyrfti að ræða mál fyrir luktum dyrum að minnihlutinn væri bara að þyrla upp ryki.
„Mér finnst þetta afskaplega dapurlegt svar því við erum fyrst og síðast að sinna eftirlitsskyldu okkar og erum að gæta hagsmuna borgarbúa og skattgreiðenda í Reykjavík,“ segir Marta.
Fréttin var leiðrétt klukkan 12:40. Áður sagði að Einar hafi hafnað viðtali en hann gat ekki veitt það fyrir hádegi vegna fundarsetu.