Veiðileiðsögunámið er hagnýtt og nýtist í senn starfandi leiðsögumönnum og áhugasömum aðilum sem áhuga hafa á að sinna slíkri leiðsögn. Námið gefur innsýn í grunnatriði og ítarlegri þætti er varða veiðileiðsagnarþjónustu. Sérfróðir leiðsögumenn kenna undirstöðuatriði stangveiða og sérfræðingar miðla fróðleik um fiskana er við sögu koma og vistfræði þeirra. Meðal kennsluefnis eru undirstöðuatriði er varða líffræði og lífshætti íslenskra ferskvatnsfiska.
Meðal annars er fjallað um árstíðabundnar göngur fiska, gönguhegðun þeirra í ferskvatni og sjó og samspil þátta er koma við sögu. Farið er yfir þætti er varða umgengni leiðsögumanna við veiðimenn allt frá móttöku þeirra, til veiðanna og annara ráða er varða dvöl í veiðihúsum. Farið verður í tveggja daga ferð í Eystri Rangá þar sem tekin verður fyrir kasttækni með einhendum og tvíhendum. Lögð er áhersla á Skyndihjálp og áfallahjálp þar sem litið er sérstaklega til þátta er tengjast hættum við ár og vötn. Farið er yfir handtök er varða frágang á afla eftir veiði, blóðgun og flökun á fiski.
Samhliða verður farið yfir grunnþætti sem varða meðhöndlun fiska með hliðsjón af "veiða og sleppa" veiðihættinum. Allir leiðbeinendur hafa áratuga reynslu sem leiðsögumenn eða vísindamenn hver á sínu sviði. Námið er alls 130 stundir og fer bæði fram í kennslustofu og á bökkum Eystri Rangár eða Hólsár. Kennslan hefst miðvikudaginn 15. Febrúar
Leiðbeinendur eru:
Þröstur Elliðason, fiskeldisfræðingur - Strengir
Kristján Friðriksson, veiðimaður og dálkahöfundur
Reynir Friðriksson, sjávarútvegsfræðingur - veiðileiðsögumaður
Fulltrúi frá Landsambandi veiðifélaga
Haraldur Eiríksson, Laxá í Kjós
Björn Theodórsson, fiskeldisfræðingur og leiðsögumaður
Kristinn Helgason, Landsbjörg
Sindri Hlíðar, Fish Partners
Sigurður Héðinn, Siggi Haugur
Sigurkarl Stefánsson, fuglafræðingur
Sr. Bragi Skúlason, Landspítalinn
ATH! Flest stéttarfélög styrkja sína félagsmenn til þessa náms.
Nánari upplýsingar og skráning fer fram í síma 898-7765 Friðjón eða
fs@menntun.is