Í dagbók lögreglu segir að bíllinn hafi verið stöðvaður skömmu síðar og bílræninginn hafi verið handtekinn, grunaður um rán, akstur undir áhrifum áfengis og önnur brot. Hann var vistaður í fangaklefa.
Leigubílstjórinn fór á bráðamóttöku en lögreglan hefur ekki upplýsingar um meiðsl hans.
Aðstoða þurfti minnst tvo aðra leigubílstjóra í nótt vegna farþega sem neituðu að greiða fyrir far eða voru til vandræða.
Þá höfðu lögregluþjónar afskipti af erlendum einstakling í Hlíðunum sem grunaður var um vörslu fíkniefna. Þá kom í ljóst að hann var hér á landi ólöglega og var hann handtekinn og vistaður í fangaklefa.
Tvö slagsmál voru tilkynnt í Hafnarfirði í nótt. Tveir voru handteknir í öðru tilvikinu og eru grunaðir um líkamsárás.
Í dagbókinni segir einnig að minnst tvö umferðaróhöpp hafi átt sér stað á höfuðborgarsvæðinu. Í einu tilfelli valt bíll á Reykjanesbraut í Kópavogi. Þar urðu meiðsl minniháttar en bíllinn var töluvert skemmdur. Draga þurfti tvo bíl af vettvangi eftir bílslys á Miklubraut en þar var ekki vitað um meiðsli.
Lögreglunni barst einnig tilkynning um skrifborðsstól sem einhver hafði komið fyrir á Miklubraut. Stóllinn var þó horfinn þegar lögregluþjóna bar að garði.