Þegar fréttastofa sló á þráðinn sagði Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar að lítið hefði verið um tjón vegna veðurs. Útköllin hafi aðallega snúist um það að hjálpa fólki sem hafði fest sig víða um land.
Björgunaraðgerðir hafi almennt gengið vel en á annan tug útkalla höfðu borist.
Hann nefnir að útköll hafi til dæmis borist af Mosfellsheiði, Kjalarnesi, á Höfn, Raufarhöfn og Snæfellsnesi.
Nú klukkan 22:10 voru aðgerðir til dæmis verðir í gangi í Grafarholti en Jón segir fleiri en tíu bíla hafa fest sig þar. Björgunarsveit er á vettvangi ásamt moksturstækjum.
Ferðamenn fengu fylgdarakstur úr fjöldahjálparmiðstöðinni
Þá funduðu almannavarnir í kvöld með viðbragðsaðilum og segir Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi almannavarna þau ánægð með daginn.
Hún segir viðbragðsaðila ánægða með það hvernig dagurinn gekk í dag en ein fjöldahjálparstöð var opnuð á Kirkjubæjarklaustri.
Í tilkynningu frá Landsbjörgu kemur fram að 34 ferðamenn hafi leitað skjóls í stöðinni. Þá hafi ferðamennirnir fengið fylgdarakstur með Vegagerðinni á Hótel Laka og inn á Hörgsland þar sem þeir munu gista í nótt.
Hjördís segist trúa því að veðurviðvaranirnar sem hafi verið gefnar út hafi skilað sér.
„Við teljum að fólk hafi bara ákveðið að vera með okkur í þessu öllu,“ segir Hjördís.
Appelsínugular viðvaranir verða enn í gildi sums staðar fyrir morgundaginn og hvetur Hjördís fólk til þess að kynna sér vel spár og færð á vegum.