Við þekkjum bardagaíþróttir eins og hnefaleika, tækvondó og blandaðar bardagaíþróttir en það er ein bardagaíþrótt sem virðist jafnvel lengra þegar kemur að hættu keppenda.
Umrædd íþrótt snýst um að gefa andstæðingi eins harðan kinnhest á meðan báðir eru uppistandandi. Sigurvegari fæst ekki fyrr en annar missir fótana og þá oftast með því að missa meðvitund.
Sænska blaðið Expressen fjallar um þessa íþrótt sem hefur verið að auka vinsældir sínar undanfarin misseri. Áhugi UFC manna á henni boðar enn meiri útbreiðslu og líklega meiri vinsældir.
Blaðamaður Expressen ræddi við prófessorinn Niklas Marklund sem gefur íþróttinni ekki háa einkunn.
„Þetta er heimska í sinni tærustu mynd. Ég get ekki varið þetta,“ sagði Niklas Marklund sem er prófessor í taugaskurðlækningum hjá háskólanum í Lundi um að hans mati heimskulegasta íþrótt í heimi.
Nýlegt myndband af sigurvegara í kinnhestabardaga vakti mikla athygli en rúmenski meistarinn hélt áfram í tíu umferðir þrátt fyrir að andlit hans hafi margfaldast öðrum megin vegna þess hver bólgan þar var orðin mikil.
Sorin Comsa hélt samt áfram keppni og fagnaði að lokum sigri. Hann fékk meðal annars hrós frá UFC stjörnunni Conor McGregor.
„Þetta er það sem ég vanalega sýni í mínum fyrirlestrum sem dæmi um það sem þú ætti alls ekki að gera. Þeir missa fótana, engjast og missa meðvitund. Þetta er algjör klikkun og það er ekki hægt að réttlæta slíkt,“ sagði Niklas Marklund.
„Þegar þú slærð einhvern í andlitið frá hlið þá fer höfuðið i hringhreyfingu. Það er einmitt slíkar aðstæður sem eru hvað hættulegastar í íþróttum. Heilinn ræður ekki við slíkt álag og getur auðveldlega skemmst,“ sagði Marklund.