Fram kom í fyrrnefndri grein Vísis að Sigurður væri í líknandi meðferð á sjúkrahúsi í Brasilíu eftir að hafa greinst með heilaæxli síðasta sumar, þá einungis 48 ára gamall. Til að bæta gráu ofan á svart misstu Sigurður og eiginkona hans meirihluta af innbúi sínu þegar það flæddi inn í hús fjölskyldunnar.
Fram kom að Sigurður væri búinn að vera búsettur í Rio de Janeiro ásamt fjölskyldu sinni síðastliðin fjögur ár. Seinasta sumar kom í ljós að Sigurður var með tvö æxli í höfðinu. Um haustið fundust þrjú önnur æxli, í lungum og nýrum, og í desember greindust tvö æxli til viðbótar í höfðinu.
Þegar Vísir ræddi við Elvu var Sigurður kominn í líknandi meðferð á sjúkrahúsi í Rio de Janeiro og höfðu Elva og yngsti bróðir hennar flogið út til Brasilíu til að vera honum til halds og trausts. Í samtali við blaðamann sagði Elva ljóst að bróðir hennar myndi deyja á næstu dögum.
Lítil og falleg athöfn
Innan við sólarhring frá því að fyrrnefnd grein birtist á Vísi var Sigurður látinn.
Hann lætur eftir sig sambýliskonu, Monu, og tvö börn, Línu Sól og Adriel Loka og auk þess fósturson, hann Rafael.
„Hann dó á sama tíma og ég gekk upp tröppurnar á spítalanum. Það fór fram lítil og falleg athöfn hérna úti þann 11. febrúar. Eftir það var haldin bálför. Það gerist allt svo hratt hér í Brasilíu þegar að andlát á sér stað,“ segir Elva í samtali við Vísi.

„Svo er síðasta flugið heim til Íslands eftir. Við munum síðan halda kveðjuathöfn hér heima þegar hann kemur heim til Íslands. Það var hans heitasta ósk að fá að hvíla hér. Eftir athöfnina mun hann svo verða lagður til hinstu hvílu við hlið föður síns, í Fossvogskirkjugarði,“ segir Elva jafnframt. Þá segir hún fjölskyldu Sigurðar vilja koma á framfæri innilegum þökkum til allra þeirra sem sýnt hafa þeim stuðning, aðstoð og hlýhug á þessum erfiðu tímum.