Engin efnisleg niðurstaða varð á fundi samninganefnda Eflingar og SA sem settur ríkissáttasemjari boðaði til klukkan átta í gærkvöldi og lauk upp úr miðnætti. Þar reyndi hann að mjaka aðilum saman um miðlunartillögu sem hann myndi leggja fram og báðir aðilar væru sáttir við að færi í atkvæðagreiðslu.
Eftir að Landsréttur úrskurðaði að Eflingu bæri ekki að veita embætti ríkissáttasemjara aðgang að kjörskrá sinni vegna miðlunartillögu sem hann lagði fram hinn 26. janúar, getur núverandi sáttasemjari varla lagt fram nýja miðlunartillögu án þess að deiluaðilar fullvissi hann um að atkvæði verði greidd um hana.
Ástráður Haraldsson hefur beint því til samninganefndarfólks beggja fylkinga að vera ekki að tjá sig við fjölmiðla á meðan á viðræðum stendur og hefur lokað húsakynnum sínum fyrir fjölmiðlafólki. Stefán Ólafsson sérfræðingur ívinnumarkaðs- og lífskjararannsóknum hjá Eflingu og einn samningamanna félagsins, hristi í veikum stoðum viðræðnanna skömmu fyrir hádegi með færslu á Facebook.

Hann sagði fundinn í gærkvöldi hafi farið í bið eftir því hvort samninganefnd atvinnurekenda (SA) myndi leyfa settum sáttasemjara að leggja fram svo kallaða miðlunartillögu í deilu Eflingar og SA.
„Við dagslok var það mér umhugsunarefni, hversu lengi fólk sem hefur milljónir í laun á mánuði getur rætt um eitt þúsund króna launahækkun til verkafólks - og það án árangurs," sagði Stefán.
Settur ríkissáttasemjari var ekki sáttur við þessar yfirlýsingar Stefáns. Hann hefði í fyrsta lagi beðið aðila að vera ekki að tjá sig opinberlega vegna þeirrar viðkvæmu stöðu sem væri uppi í deilunni.
„Í öðru lagi er það svo að samkvæmt lögunum um stéttarfélög og vinnudeilur er beinlínis óheimilt að greina opinberlega frá eða bera vitni um það sem kann að hafa komið fram ásamningafundum, nema með heimild gagnaðilans með samþykki beggja samningaðila. Svo er það í þriðja lagi, sem er kannski verst, að þessi frásögn Stefáns Ólafssonar er einfaldlega ekki rétt,“ sagði Ástráður í fréttum Bylgjunnar klukkan tvö.
Þetta mætti ekki gerast og væri er vís vegur til að hleypa deilunni endanlega út af teinunum ef menn ætluðu að fara þessa leið.
Stjórnvöld fylgjast með á kantinum
Ef ekki nást samningar eða að minnsta kosti samstaða um að miðlunartillaga verði lögð fram til atkvæðagreiðslu beggja aðila á allra næstu sólarhringum má reikna með að stjórnvöld fari að verða áhyggjufull. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir þó ekki komið að því að stjórnvöld stígi beinlínis inn í deiluna.

„Ég met stöðuna þannig að settur sáttasemjari hefur verið að vinna sig í gegnum þessi mál af festu. Farið í raun og veru í gengum alla liði og hélt því áfram í gær. Nú verður að koma í ljós hvort mat hans er að það sé tímabært að kalla aðila aftur saman til fundar. En meðan fólk situr við samningaborðið leyfi ég mér að vona að það sé von um farsæla lendingu í þessu máli," sagði Katrín að loknum ríkisstjórnarfundi í dag.
Það væri hins vegar erfitt fyrir hana að úttala sig um hvað gerðist næst í deilunni.
„Það sem við höfum verið að gera er eins og ég segi, að meta áhrifin af þeim verkfallsaðgerðum sem standa yfir. Það stöðumat breytist frá degi til dags. Eftir að boðað var til fundar í gær var auðvitað verkbanni Samtaka atvinnulífsins frestað. Það breytir okkar stöðumati þannig að við metum það ekki sem svo að það sé tímabært að stíga inn í þessa deilu á þessum tímapunkti," sagði Katrín Jakobsdóttir.