„Nei, það hefur enginn frá HSÍ heyrt í mér,“ svarar Snorri þegar blaðamaður gerir tilraun til að fá upp úr honum hvort að viðræður séu hafnar um að hann verði næsti landsliðsþjálfari. Hann hafi vissulega áhuga á stærsta starfinu í íslenskum handbolta, það hafi raunar lengi verið draumur, en telji ótímabært að ræða þann möguleika núna.
„Þessi umræða fer ekkert alveg framhjá mér, ég skal alveg viðurkenna það, en hún hefur verið fullhávær fyrir minn smekk, miðað við að ekkert hefur gerst. En það er heiður að vera orðaður við þetta starf. Smá viðurkenning á einhverjum góðum verkum hjá mér. Að öðru leyti er ég nokkuð slakur yfir þessu og þessi törn hjá Val hefur gert að verkum að ég hef haft lítinn tíma til að velta þessu fyrir mér,“ segir Snorri sem stýrt hefur Val upp úr riðlakeppni Evrópudeildarinnar með eftirtektarverðum hætti í vetur.
Eftir brotthvarf Guðmundar Guðmundssonar í síðasta mánuði stýra þeir Gunnar Magnússon og Ágúst Jóhannsson liði Íslands á morgun gegn Tékkum ytra, og í Laugardalshöll á sunnudaginn, sem og í leikjum gegn Ísrael og Eistlandi í apríl. Það eru síðustu fjórir leikirnir í undankeppni EM sem fer svo fram í janúar.
„Allir hljóti að svara þessari spurningu játandi“
Til þess að Snorri stýri Íslandi á EM þyrfti að nást samkomulag við Val en um áramótin var tilkynnt að Snorri hefði framlengt samning sinn við félagið til sumarsins 2025. En hefði hann áhuga á að taka við íslenska landsliðinu strax í sumar?
„Mér finnst erfitt að svara þessu þegar þetta er ekki orðið neitt áþreifanlegt. En ég skal viðurkenna það að það er draumur minn að þjálfa landsliðið. Alveg eins og það er draumur minn að þjálfa topplið í Þýskalandi eða Frakklandi, eða eitthvað svoleiðis. Og það var draumur fyrir mig að þjálfa Val,“ segir Snorri og bætir við:
„Ég held að allir hljóti að svara þessari spurningu játandi en það þarf fleira að ganga upp. Það þurfa fleiri að koma að borðinu og allar forsendur að vera fyrir hendi. Á meðan að ekkert hefur átt sér stað er því erfitt á þessum tímapunkti að tjá sig um einhvern áhuga. Svarið mitt er bara svipað núna og þegar Gummi var ráðinn síðast. Það var alveg draumur fyrir mig þá að þjálfa landsliðið.“

Snorri stýrði Val til deildarmeistaratitils síðastliðinn föstudag og hefur þar með landað síðustu sjö stóru titlum sem í boði hafa verið fyrir liðið hér á landi. Sem þrautreyndur landsliðsmaður veit hann sömuleiðis allt um hvernig það er að vera með miðpunktur athygli þjóðarinnar í janúar.
„Hundrað prósent tilbúinn“
Snorri hefur þó aðeins þjálfað eitt lið, Val frá árinu 2017, en telur hann sig tilbúinn í landsliðsþjálfarastarfið í dag?
„Ég er hundrað prósent tilbúinn í það. Það er kannski minn stærsti kostur og galli. Ég hef mikla trú á sjálfum mér sem þjálfara. Ég er mjög óhræddur í þessu og ófeiminn við að taka að mér verkefni,“ segir Snorri.
Hann bendir á að verkefni HSÍ við að finna landsliðsþjálfara sé stórt og að þjóðin sé rík af góðum þjálfurum. Vísir hefur einnig rætt við tvo erlenda þjálfara, Svíann Michael Apelgren og Spánverjann Roberto Garcia Parrondo, sem báðir kváðust áhugasamir um að taka við landsliðinu.
Snorri segir að á þessum tímapunkti sé alveg sérstaklega spennandi að taka við íslenska landsliðinu:
„Þetta er frábært lið. Margir góðir leikmenn, á góðum aldri, svo það er spennandi að taka við landsliðinu núna. Ég held að allir geti verið sammála um það, þó að væntingarnar hafi kannski verið fullmiklar í janúar en samt nokkuð nærri lagi.“
Ekki viljað fylgja eftir áhuga að utan
Árangur Snorra með Val, sem komst í 16-liða úrslit Evrópudeildarinnar á kostnað liða úr frönsku og spænsku deildinni, hefur án vafa gert hann að spennandi kosti fyrir sterk félög á meginlandi Evrópu. Það virðist hins vegar ekki vera valmöguleiki sem Snorri er að velta fyrir sér að svo stöddu:
„Ég hef ekki fengið nein tilboð [að utan] en maður stjórnar því svolítið sjálfur. Ég er með mjög skýra sýn á það hvernig ég vil gera hlutina og hverju ég hleypi inn á borð til mín. Mér líður vel á Íslandi ásamt konunni minni og börnunum, og það þarf mikið til þess að ég stökkvi af stað í dag. Ég hef því ekki gefið neitt rosalega mikið færi á mér. Jú, jú, það er einhver áhugi til staðar, en ég hef ekki viljað taka það neitt lengra.
Ég hef náttúrulega verið mjög ánægður í Val, með það traust sem ég hef fengið þar, og auðvitað skemmir árangurinn ekki fyrir. Svo hefur Evrópudeildin sýnt að deildin hérna heima er betri en menn héldu, erfiðari en menn héldu, og mér finnst til dæmis óþarfi að fara héðan til að taka við verra liði en Val,“ segir Snorri.