Forsetinn sagði að Kínverjar yrðu að auka hernaðarlega getu sína og styrk til að „takast á við ógnir, verja hagsmuni ríkisins og ná strategískum markmiðum þess“.
Hann sagði einnig, samkvæmt AP fréttaveitunni, að auka þyrfti sjálfbærni Kína á sviðum vísinda og tækni, treysta birgðakeðjur og bæta allar birgðir ríkisins svo hægt væri að nýta þær til að verja þjóðaröryggi Kína.
Vill klára uppbygginguna fyrir 2027
Þetta sagði Xi að þyrfti að hafa tekist fyrir árið 2027, sem marka mun aldarafmæli kínverska hersins. Bandaríkjamenn hafa sagt að Xi hafi skipað forsvarsmönnum kínverska hersins að vera tilbúnir í að ráðast á Taívan fyrir árið 2027, þó engin ákvörðun um innrás hafi verið tekin.
Kínverjar segja Taívan tilheyra Kína en árið 1949 flúðu þjóðernissinnar til eyjunnar undan kommúnistum í borgarastyrjöld landsins. Ráðamenn í Kína hafa heitið því að sameina ríkin og með valdi ef svo þarf. Þeirra á meðal er Xi.
Taívanar segjast sjálfstæðir og segjast ætla að verja frelsi þeirra og lýðræði. Sjálfstæðissinnum hefur vaxið ásmegin í Taívan á undanförnum árum en Taívanar hafa aldrei lýst yfir formlegu sjálfstæði.
Hafa þegar staðið í mikilli uppbyggingu
Kínverjar hafa varið miklu púðri í nútímavæðingu herafla landsins á undanförnum árum. Svo mikilli að yfirmenn herafla Bandaríkjanna hafa á undanförnum árum varað við því að hernaðargeta Kína væri að nálgast getu Bandaríkjanna.
Sjá einnig: Drekinn að ná í stélið á erninum
William Burns, yfirmaður Leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA), sagði þó í viðtali í síðasta mánuði að Xi væri talinn efast um getu kínverska hersins til að hertaka Taívan. Þær efasemdir sagði Burns að ættu rætur í slæmu gengi Rússa í Úkraínu.
„Ég held að okkar mat sé það, og það hefur verið opinberað, að Xi forseti hefur skipað hernum, forsvarsmönnum hersins, að vera tilbúnir til að ráðast á Taívan fyrir árið 2027. En það þýðir ekki að hann hafi ákveðið að gera innrás, þá eða á öðru ári,“ sagði Burns.
Qin Gang, utanríkisráðherra Kína, sagði í ræðu á þriðjudaginn að átök milli ríkjanna væru óumflýjanleg ef Bandaríkjamenn hættu ekki að þrengja að Kína í efnahagsmálum.
Sjá einnig: Gagnrýndi Vesturveldin en sagði samskiptin við Rússa til fyrirmyndar
Það var í kjölfar þess að ráðamenn í Kína tilkynntu að auka ætti fjárútlát til varnarmála um sjö prósent á þessu ári.
Sjá einnig: Kínverjar setja aukið púður í herinn
Bandaríkin eiga í varnarsamstarfi með Taívan og hefur Joe Biden, forseti, sagt að Bandaríkjamenn myndu koma Taívönum til aðstoðar til tilfelli innrásar. Óljóst er þó hvort það myndi fela í sér beina hernaðaraðstoð eða aðstoð sambærilega þeirri sem Úkraínumenn fá frá Bandaríkjunum. Það er að segja vopn, þjálfun og upplýsingar, meðal annars.
Vilja varnir gegn Javelin og Stinger-eldflaugum
Hernaðarsérfræðingar í Kína segja að herinn þurfi að finna leiðir til að skjóta niður Starlink-gervihnetti bandaríska fyrirtækisins SpaceX og vernda skriðdreka sína og þyrlur gegn Javelin og Stinger -eldflaugum. Þetta kemur fram í grein Reuters frá því í gær en hún byggir á greiningu blaðamanna á greinum og rannsóknum sem birtar hafa verið í fjölmiðlum og tímaritum í Kína.
Javelin eldflaugar eru hannaðar til að granda skriðdrekum og Stinger-eldflaugar til að granda þyrlum, flugvélum og jafnvel stýriflaugum. Tiltölulega auðvelt er fyrir einn mann að skjóta báðum eldflaugunum. Þær hafa reynst Úkraínumönnum vel gegn Rússum og eru meðal þeirra vopna sem Bandaríkjamenn vilja einnig útvega Taívönum.
Fregnir bárust af því í haust að greiningar starfsmanna Varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna hefðu sýnt að Taívan yrði líklega einangrað um tíma, komi til innrásar, og að koma þyrfti fyrir miklum birgðum af vopnum á eyjunni, áður en innrásin yrði gerð.
Vilja geta grandað smáum gervihnöttum SpaceX
Kínverskir hernaðarsérfræðingar virðast þó hafa sérstakar áhyggjur af Starlink.
Starlink-gervihnettir SpaceX hafa sömuleiðis reynst Úkraínumönnum mjög vel gegn Rússum. Starfsmenn SpaceX hafa skotið á þriðja þúsund gervihnöttum á braut um jörðu með því markmiði að mynda þyrpingu gervihnatta og nota hana til að veita fólki um heiminn allan aðgang að internetinu. Allt að tólf þúsund smáir gervihnettir eiga að mynda þessa þyrpingu þegar hún verður fullklár.
Sjá einnig: Fyrstu Starlink-rákirnar á næturhimni yfir Íslandi
Úkraínumenn hafa notað Starlink til að veita hermönnum aðgang að netinu en þá nettengingu hafa þeir meðal annars notað til samskipta og til þess að fljúga drónum og nota þá til að stýra stórskotaliðsárásum í rauntíma.
Í grein Reuters segir að kínverskir sérfræðingar búist fastlega við því að Bandaríkin og önnur Vesturlönd muni notast mikið við Starlink, komi til átaka milli Kína og Bandaríkjanna. Mikilvægt væri fyrir kínverska herinn að koma upp sambærilegri gervihnattaþyrpingu og í senn finna leiðir til að skjóta niður gervihnetti SpaceX eða gera þá óvirka.
Fréttaveitan hefur einnig eftir áðurnefndum sérfræðingum að innrás Rússa í Úkraínu hafi sýnt fram á mikilvægi notkunar dróna í hernaði. Fjárfesta þurfi frekar í þróun þeirra og þjálfun hermanna í notkun þeirra.