Tilraun Tékkans Vencl fór fram í gær í Sviss en vatnið var ansi kalt, í kringum eina til fjórar gráður. Vencl hefur birt nokkur myndbönd af tilrauninni á Instagram-síðu sína. Alls var hann ofan í vatninu í 1 mínútu og 54 sekúndur.
Vencl hóstaði upp smá blóði eftir að hann kom upp en hann fór á spítala eftir tilraunina í skoðun. Læknarnir komust að þeirri niðurstöðu að allt væri í lagi með hann.