Seðlabankinn hækkaði í dag stýrivexti um heila prósentu, úr 6,5 prósentum í 7,5. Um er að ræða tólftu stýrivaxtahækkun Seðlabankans í röð.
Kristján Þórður Snæbjarnarson, forseti ASÍ, gagnrýnir hækkunina í grein sem birtist á Vísi í dag:
„Mörg heimili eru í miklum vanda og líkt og jafnan áður lenda afleiðingar þessa á herðum þeirra sem síst mega við slíkum áföllum; tekjulágum heimilum, leigjendum og þeim sem nýverið hafa fest kaup á fyrstu fasteign við hátt raunverð. Þessir viðkvæmu hópar standa frammi fyrir bráðavanda af völdum verðbólgunnar sem bregðast þarf við. Þetta er ekki fólkið sem flýgur í sólina á Tenerife.“
Kristján segir að það sé augljóst að beita þurfi öðrum verkfærum til að bregðast við vandanum. Kominn sé tími til að ríkisstjórnin, efsta lag samfélagsins og stjórnendur fyrirtækja hætti að réttlæta verðhækkanir.
Þá segir hann Seðlabankann vera á rangri leið með „sífelldum og öfgakenndum“ stýrivaxtahækkunum. Nýjasta hækkunin sé til þess fallin að þrýsta meginþorra skuldsettra heimila yfir í verðtryggð lán. Það muni draga úr virkni stýrivaxta og ýta undir verðbólgu.
„Sinnuleysi stjórnvalda gagnvart afkomu almennings hefur lengi verið okkur í verkalýðshreyfingunni undrunarefni. Nú verður ekki lengur hjá því komist að takast á við þann mikla og vaxandi vanda sem verðbólga og vaxtahækkanir valda þeim hópum sem verst standa. Málið þolir enga bið.“
Forsendur kjarasamninga brostnar
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, grípur í svipaða strengi og Kristján en hann tekur þó sterkara til orða.
„Það er orðið ljóst að Seðlabankanum mun á endanum takast að rústa íslenskum heimilum og þurrka upp alla aukningu á ráðstöfunartekjum heimilanna sem náðst hefur í kjarasamningum liðinna ára með þessari eyðileggingar-herferðar stefnu sinni,“ segir Vilhjálmur í færslu sem hann birtir á Facebook-síðu sinni.
Vilhjálmur segir að þessar vaxtahækkanir virki eins og skýstrókur sem sogar burt allt ráðstöfunarfé heimilanna og færir það til fjármagnseiganda og bankastofnanna. „Þannig virka vaxtahækkanir, færa fé frá skuldsettum heimilum yfir til fjármálakerfisins,“ segir hann.
Þá segir Vilhjálmur að eftir hækkunina séu forsendur þeirra kjarasamninga sem undirritaðir voru fyrir áramót brostnar. Honum finnst að verkalýðshreyfingin eigi að slíta öllum viðræðum við Samtök atvinnulífsins.
„Það er sorglegt að sjá hvernig Seðlabankinn slátrar þeim ávinningi sem við töldum okkar vera að ná í síðasta kjarasamningi og því er það mitt persónulega mat að verkalýðshreyfingin eigi að slíta öllum viðræðum við Samtök atvinnulífsins sem eru komnar af stað enda tilgangslaust að vinna að langtímasamningi á sama tíma og allir varpa kostnaðarhækkunum á herðar launafólks, neytenda og heimila.“