Jónas Árnason, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við fréttastofu að búið sé að slökkva eldinn og að verið sé að vinna í því að ná bílnum út.
Þá segir Jónas að engin slys hafi orðið á fólki en að bíllinn hafi orðið eldinum að bráð. „Ég held að þetta sé bara allt brunnið,“ segir hann.
Að sögn Jónasar kemur fyrir að það kvikni í tvinnbílum, það gerist þó ekki oft. Hann segir algengara að það kvikni í bílum sem ganga eingöngu fyrir jarðeldsneyti.
„Jarðeldsneytisbílarnir eru að brenna meira heldur en rafmagsnbílarnir eins og staðan er.“