Guðmundur Ingi Kristinsson þingflokksformaður Flokks fólksins, Hanna Katrín Friðriksson þingflokksformaður Viðreisnar, Þórunn Sveinbjarnardóttir, sem gengnir embætti þingflokksformanns Samfylkingarinnar í fjarveru Loga Einarssonar sem staddur með utanríkismálanefnd í Washington og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingflokksformaður Pírata lögðu tillöguna fram rétt fyrir þingfund sem er á dagskrá klukkan þrjú.
Miklar umræður voru á Alþingi í gær eftir að Þórunn Sveinbjarnardóttir formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis gerði grein fyrir minnisblaði frá skrifstofu Alþingis um vægi þingskaparlaga gagnvart öðrum lögum.Þórunn sagði minnisblaðið staðfesta að enginn, hvorki dómsmálaráðherra né aðrir, væri undanþegin því að afhenda Alþingi gögn vegna lagasetningar væri þess óskað.
Óskað var eftir áliti skrifstofu Alþingis vegna deilna þingmanna og allsherjar- og menntamálanefndar við dómsmálaráðherra í tengslum við afhendingu gagna frá Útlendingastofnun um umsækjendur til þingsins um ríkisborgararétt.
Þórunn og fleiri þingmenn sögðu í gær að Jón Gunnarsson hefði viðurkennt opinberlega að hafa sagt Útlendingastofnun að afhenda Alþingi ekki gögnin og þar með brotið þingskaparlög samkvæmt minnisblaðinu. Upphófust mjög heitar umræður um málið undir liðnum fundarstjórn forseta á Alþingi í gær.

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra varði gjörðir dómsmálaráðherra og sagði málið ekki snúast um þetta. Vegna mikillar fjölgunar umsókna hefði Útlendingastofnun einfaldlega ekki undan við að skoða þær.
Í umræðunum sagði dómsmálaráðherra nauðsynlegt að skoða möguleg tengsl nefndarfólks við það fólk sem hefði verið veittur ríkisborgararéttur.
„Var mögulegt að einhverjir hefðu komið að borðinu áður með atvinnu eða vinnu við að sinna þeim hælisleitendum sem voru að fá veitingu á ríkisborgararétti. Hafa mönnum borist einhver sérstakur þakklætisvottur fyrir að veita ríkisborgararétt," spurði dómsmálaráðherra í gær og uppskar frammíköll frá hneyksluðum þingmönnum.

Formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar undraðist að forseti léti það viðgangast að dómsmálaráðherra kæmi fram með atvinnuróg og dylgjur um þingmenn.
„Endurtekur slúðrið og lygina eins langt og það nær og eins lengi og hann getur í þeirri von að kjósendur trúi því. Lægra er ekki hægt að leggjast hér á hinum háa Alþingi hæstvirtur forseti. Og forseti lætur það viðgangast að hæstvirtur dómsmálaráðherra rægi þingmenn úr ræðustól Alþingis," sagði Þórunn Sveinbjarnardóttir.
Eftir lok umræðunnar baðst Jón hálfpartinn afsökunar á þessum ummælum sínum á Facebook síðu sinni síðdegis í gær. Vantrauststillögur á ráðherra ber að taka fyrir eins fljótt og auðið er og má því reikna með að umræður um tillöguna fari fram á Alþingi fyrir helgi.