Þetta segir Jóhannes Ólafsson, yfirlögregluþjónn í Vestmannaeyjum í samtali við fréttastofu. „Nei það verður ekki farið fram á gæsluvarðhald, það er ekkert tilefni til þess.“
„Ekki hefur einhver séð systur mína eða heyrt eitthvað frá henni? Hún fór að heiman um 19 leytið í gærkvöldi og skilaði sér aldrei heim í nótt,“ sagði í skilaboðum frá eldri systur stúlkunnar sem voru í mikilli dreifingu á samfélagsmiðlum framan af degi í gær.
Fjölskyldan óttaðist að hún hefði farið með Guðmundi Elís Sigurvinssyni, dæmdum ofbeldismanni, þar sem þau hefðu verið í samskiptum undanfarið. Stúlkan er fædd 2007 og verður sextán ára á árinu. Guðmundur Elís verður 24 ára í sumar.
Stúlkan reyndist vera á bát með Guðmundi og var hann handtekinn þegar báturinn kom til hafnar í Reykjanesbæ í gær.
Rannsókn málsins er á forræði Lögreglunnar í Vestmannaeyjum. Bjarney Annelsdóttir, yfirlögregluþjónn á Suðurnesjum, staðfestir að embættið hafi aðstoðað kollega sína í Vestmannaeyjum við handtöku í gær.
Jóhannes segir að lögreglan á Suðurnesjum hafi tekið skýrslu af Guðmundi og hann svo látinn laus í gærkvöldi.
Aðspurður hvort málinu sé þá lokið segir hann óvíst að svo sé.
„Við bíðum eftir skýrslu frá Suðurnesjum og tökum svo stöðuna.“
Fyrrverandi kærasta Guðmundar Elís hefur greint frá miklu ofbeldi í sambandi þeirra. Myndir sem sýndu áverka stúlkunnar vöktu mikla athygli og þótti mörgum tólf mánaða dómur mildur í því samhengi.
Þá var Guðmundur Elís handtekinn í september 2021 grunaður um kynferðisbrot gegn konu í Vestmannaeyjum. Jóhannes Ólafsson kveðst ekki búa yfir upplýsingum um stöðu rannsóknar þess máls.