Sveinn Jónsson, ljósmyndari, birti myndir af „skuggagæsinni“ eins og hann kallar hana á Facebook í vikunni. Þessi grágæsarfrú var stödd í Háaleitishverfinu með tilvonandi maka sínum þegar Sveinn fann þau.
Í skiptum fyrir nokkra brauðmola fékk hann að mynda hjónin.

Sveinn skrifar í færslu sinni að líklega sé um „melanisma“ að ræða en það er litningagalli sem á íslensku kallast sorta og er í raun andhverfa albínisma. Á meðan albinóar búa ekki yfir neinum melanín-litarefnum þá er ofgnótt af litarefninu í húð þeirra sem lifa við sortu.
Myndirnar af gæsinni eru ansi magnaðar og er hún hin tignarlegasta.
