Samkvæmt tilkynningu um ráðninguna, sem birt var á vef Stjórnarráðsins, mun samhæfingarstjóri stýra samhæfingarteymi um móttöku flóttafólks. Teymið tók nýverið til starfa en meginverkefni þes er að efla samhæfingu og yfirsýn yfir helstu verkefni sem snúa að móttöku flóttafólks.
Atli Viðar lauk BA-námi í sagnfræði og námi í mannréttindafræðum frá Háskólanum í Essex. Hann hefur starfað sem sviðsstjóri alþjóðasviðs Rauða krossins hér á landi frá árinu 2016. Fyrir það starfaði hann sem verkefnastjóri í flóttamannamálum hjá Rauða krossinum.