„Forsætisnefnd Alþingis hefur lokið afgreiðslu á erindi Ingu Sæland, dags. 18. mars sl., um meint brot Þórunnar Sveinbjarnardóttur á siðareglum fyrir alþingismenn,“ segir í tilkynningu Alþingis. „Niðurstaða málsins var að erindinu var vísað frá með vísan til 1. mgr. 18. gr. siðareglnanna.“
Ummælin umræddu féllu í umræðum um útlendingafrumvarp Jóns Gunnarssonar, dómsmálaráðherra þann 15. mars síðastliðinn. Eru þau eftirfarandi:
„Hæstv. forseti. Þegar ég hélt að þetta frumvarp gæti ekki orðið verra þá kom breytingartillaga frá hv. þingmanni, formanni Flokks fólksins, sem bætir um betur. Það eina sem er hér á ferðinni er ódýr og ógeðfelldur popúlismi sem byggir ekki á staðreyndum, sem byggir á útlendingaandúð. Og það gleður mig að sjá að það er verið að fella þessa tillögu.“

Síðar urðu hvöss orðaskipti á milli Ingu og Helgu Völu Helgadóttur, sem kom samflokkskonu sinni til varnar. Sendi þá Inga þá erindi til forsætisnefndar.
Þingmenn njóti ríkrar verndar
„Við mat á ummælum þingmannsins, sem féllu á þingfundi 15. mars sl., var horft til þess að siðareglur þingmanna koma til fyllingar þeim skyldum sem þeir hafa samkvæmt stjórnarskrá, þingsköpum og úrskurðum forseta Alþingis um góða reglu,“ segir í tilkynningu nefndarinnar.
Í framkvæmd hafi verið miðað við að þingmenn njóti ríkrar verndar til þátttöku í opinni og frjálsri stjórnmálaumræðu. Einnig að tjáning þingmanna lúti fundarstjórn forseta Alþingis og athafnir við stjórn þingfunda sæti ekki endurskoðun.