Þorgeir Örn Tryggvason vakti fyrst athygli á málinu í gær og skrifaði um það á Twitter. Hann sagði þar að Hulda Ósk hefði verið valin í lið ársins í 1. deild kvenna í körfuknattleik. Hins vegar hafi KR ekki látið Huldu Ósk vita af valinu og hún því ekki getað mætt til að veita verðlaununum viðtöku.
Stoltur af árangrinum hjá minni konu að vera valin í úrvalslið 1.deildar kvenna.
— Thorgeir Örn Tryggva (@ThorgeirOrnTryg) May 19, 2023
Ekki jafn stoltur af @krkarfa fyrir að sleppa því að láta hana vita af árangrinum, þar af leiðandi missa af lokahófi KKÍ og frétta af árangrinum í gegnum fjölmiðla.#körfubolti #karfan pic.twitter.com/EOofcRCKX6
Í samtali við Vísi segir Hulda Ósk að stjórn KR hafi haft samband við hana og beðist margfalt afsökunar á því að það þetta hafi farið framhjá þeim. Hún segist kunna vel að meta það.
„Ég vil þó meina að þetta hefði aldrei komið fyrir ef um væri að ræða leikmann úr karlaliðinu. Þetta er alltaf saman sagan. Árið er 2023, gerum betur gagnvart kvenmönnum í íþróttum,“ sagði Hulda Ósk þegar blaðamaður Vísis hafði samband við hana.
Hulda Ósk var á sínu öðru tímabili með KR í vetur en hún gekk til liðs við félagið frá Fjölni sumarið 2021 og var einnig valin í lið ársins á síðasta tímabili.