Sex leigubílaleyfi eru á Selfossi og er nóg að gera hjá leigubílstjórum staðarins þó einhverjir þeirra séu líka í annarri vinnu. Nýi miðbærinn hefur mikið aðdráttarafl og því heilmikið að snúast hjá leigubílstjórunum að keyra fólk þangað og sækja líka. Það eru þó hvergi merkt stæði fyrir leigubíla, sem leigubílstjórarnir eru ósáttir við.
„Fólk finnur ekki bílana, ýmist inn í göngugötu eða út á Eyravegi. Okkur vantar einhvern fastan stað, sem við getum komið á. Okkur finnst þetta ekki nógu gott, hérna vantar að fá einhvern fastan stað. Nú á að fara að rífa húsin við Eyraveginn. Nú væri fínt að fá að setja upp merki þar, þannig að við gætum komið þar fimm til sex bílum í röð, það væri toppurinn fyrir okkur,“ segir Axel K. Pálsson leigubílstjóri á Selfossi.
Talandi um húsin við Eyraveginn, það var byrjað að rífa þau niður í gær en þar eiga að koma í staðinn ný og glæsileg hús, sem er hluti af uppbyggingu nýja miðbæjarins.
Er nóg að gera í leigubílaakstri á Selfossi?
„Já, já, það er hellingur að gera, nú er að koma sumar og þá eykst þetta með ferðamennina alveg helling. Við reynum að gera okkar besta,“ bætir Axel við.

Að sögn Vignis Guðjónssonar, sem er einn af forsvarsmönnum nýja miðbæjarins þá stendur til að útbúa varanleg bílastæði fyrir hvers kyns atvinnubifreiðar, leigubíla og rútur í gatnagerð annars áfanga miðbæjarins og standa bílastæðamálin því öll til bóta.
