Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar, Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR og Þorsteinn Víglundsson fyrrverandi félags- og vinnumarkaðsráðherra og fyrrverandi framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins ræddu stöðu efnahagsmála í Pallborðinu á Vísi og Stöð 2/Vísi í dag.

Ragnar Þór vísaði fullyrðingum seðlabankastjóra og fleiri um að of miklar launahækkanir samkvæmt síðustu skammtíma kjarasamningum væru ábyrgar fyrir því að verðbólga hefði ekki lækkað.
„Allar fullyrðingar um að verkalýðshreyfingin beri ábyrgð á verðbólgu hér stenst náttúrlega ekki eina einustu skoðun. Laun sem hlutfall af verðmætasköpun hafa lækkað á hverju einasta ári frá 2018,“ sagði formaður VR.

Þorsteinn sagði launahækkanir umfram framleiðni hins vegar augljóslega hafa leitt til verðbólgu á Íslandi.
„Það er bara mjög einfalt. Þegar við skoðum tímabilið frá þjóðarsátt þá skýrist verðbólgan sem hefur verið hér á landi yfir þetta 30 ára tímabil fullkomlega af þeim launahækkunum sem keyrðar hafa verið í gegnum vinnumarkað. Með sama hætti og lítil verðbólga á hinum Norðurlöndunum og lágt vaxtastig skýrist fullkomlega af þeim launahækkunum sem þar hafa verið keyrðar í gegn,” sagði Þorsteinn.
Kristrún Frostadóttir sagði stöðu húsnæðismála og vanefndir stjórnvalda í þeim efnum ráða miklu um stöðu efnahagsmála og hversu mikil verðbólgan væri. Ríkisvaldið þyrfti að koma að samkomulagi í þeim efnum sem treystandi væri á.

„Munurinn á okkur og Norðurlöndunum er að velferðarkerfið á Norðurlöndunum á undanförnum árum hefur verið rekið og drifið áfram af jafnaðarfólki og jafnaðarstjórn. Þótt það hafi auðvitað verið flökt þar á. Þar er skilningur á því að þessi þriðji fótur undir þrífætta stólnum, sem er ríkið, vinnumarkaður og atvinnurekendur, snýr ekki að því að koma eins og forseti ASÍ sagði á sínum tíma með skiptimynt inn í kjarasamninga þegar allt er komið í ósætti. Heldur að leggja fram langtímaplön um fjármögnun í uppbyggingu húsnæðis sem stenst,” sagði Kristrún.

Ósammála um spillingu á Íslandi
Stefnt hefur verið að því að gerðir verði langtíma kjarasamningar sem taki við af núgildandi skammtímasamningum. Formaður VR var ekki bjartsýnn á að breitt þríhliða samkomulag næðist við gerð næstu kjarasamninga. Fyrirtæki á Íslandi hefðu aldrei sýnt samfélagslega ábyrgð og því ríkti ekki traust milli aðila eins og á Norðurlöndunum.
„Það þarf náttúrlega algera viðhorfsbreytingu frá okkar viðsemjendum og stjórnvöldum líka til að fara í langtíma uppbyggingu á húsnæðismarkaði,“ sagði Ragnar Þór. Þorsteini Víglundssyni væri tíðrætt um að norræni markaðurinn byggði á trausti. Ekkert slíkt traust væri til staðar hér á landi þar sem fyrirtækin hefðu alltaf hagað sér eins og þeim sýndist án samfélagslegrar ábyrgðar.
„Það var meiri hagnaður í fjármálakerfinu heldur en í útflutnings- og framlleiðslugreinunum til samans hérna á Íslandi. Hugsið ykkur. Þetta er svo galið ástand og hér ríkir svo djúp og rótgróin spilling. Sérstaklega þegar maður starfar eins og í verkalýðshreyfingunni, með stjórnmálafólki og atvinnulífinu. Maður upplifir þetta svo ofboðslega sterkt,” sagði Ragnar Þór.
Þorsteinn sagðist ekki vita í hvaða samfélagi Ragnar byggi stundum í þegar hann lýsti íslensku samfélagi.
„Að þetta sé ömurlegt rotið og spillt samfélag. Þetta er bara eitthvert hugafórstur Ragnars Þórs,” sagði Þorsteinn. Það væri magnað hvað tekist hefði að gera í þessu fámenna samfélagi.
„Hentar elítunni vel,” skaut Ragnar Þór þá inní rétt áður en Pallborðinu lauk.
Sjá má þáttinn í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.