Prjónagleðin er prjónahátíð sem haldin er á Blönduósi aðra helgina í júní árlega. Markmið Prjónagleðinnar hefur frá upphafi verið að sameina prjónafólk og skapa því vettvang til þess að hittast og miðla prjónasögum, nýjum hugmyndum og aðferðum, gömlum hefðum og síðast en ekki síst Prjónagleðinni í öllum sínum fjölbreytileika.
„Hér sameinast prjónarar Íslands á svona árshátíð og hér er hægt að fara á námskeið, það er hægt að versla fullt af garni og fylgihlutum og það er hægt að vera með öðru prjónafólki. Það er hægt að sitja allan daginn á kaffihús og prjóna. Það eru kvöldvökur og þetta snýst bara allt um prjón þessi helgi,” segir Svanhildur Pálsdóttir, viðburðastjóri Prjónagleðinnar.
Áttu ekki von á mikið af gestum og góðri stemming?
„Jú, ég á von á mikið af gestum og bara feikilega góðum anda og mikilli gleði.”

Sérstakur heiðursgestur frá Danmörku mætir á hátíðina.
„Já, hápunktur hátíðarinnar erþað að við erum að fá stjörnu í heimsókn sem verður með okkur alla hátíðina en það er hún Leneholi Samsö, sem er danskur prjónahönnuður og mjög flink prjónakona. Ég hugsa að flestir íslenskir prjónarar hafa prjónað eitthvað eftir hana,” segir Svanhildur.

Pétur Arason, sveitarstjóri ætlar ekki að missa af prjónahátíðinni enda búin að fá gjafabréf til þátttöku á námskeiðinu “Karlar prjóna”.
„Já, nú er búið að kaupa fyrir mig námskeið í prjóni en nú þarf ég líka að taka þátt. Ég hlakka bara til þess,” segir Pétur.
Og hvað ætlar þú að prjóna?
„Það er spurningin, ætli ég byrji bara ekki á bókamerki, einhverju mjög einföldu, ég veit það ekki, ég ætla að láta kennarann kannski ráða því.”