Sigmar er heitt í hamsi í nýjasta hlaðvarpsþætti 70 mínútna um stöðu samfélagsins í kjölfar frekari vaxtahækkana og spyr sig hvernig fólk eigi að hafa efni á að borga ört hækkandi húsnæðislán.
Sigmar er ekki einn um það að bauna á stjórnvöld fyrir skort á viðbrögðum. Stjórnarandstaðan á Alþingi hefur verið harðorð undanfarna viku og sömuleiðis verkalýðsfélögin.
Þá hafa um tvö hundruð manns meldað sig á mótmæli á Austurvelli í dag klukkan 13. „Ekkert helvítis væl lengur. Berum glæpahyskið út,“ er yfirskrift mótmælanna.
Lætur íslenska veðrið ekki trufla sig
„Veðrið hefur ekki áhrif á mig sem betur fer en hef alveg samúð með þeim sem sveifla skapi út af veðri. Það er alveg ferlegt,“ segir Sigmar og heldur áfram:
„En bættu svo ofan á það að verðbólgu hækkanir og húsnæðislán fólks hafa hækkað um 150 til 200 þúsund á einum mánuði. Hvernig á fólk að hafa efni á þessu?“
Sigmar gerðist boðflenna á árshátíð Alþingis um miðjan maí. Þar virtist fókus Sigmar reyndar á að dansa við Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra frekar en að segja ráðherrum til syndanna.
„Á sama tíma eru fréttir af methagnaði bankanna og að það eigi að setja launaþak á opinbera starfsmenn. Svo í alvöru mætir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra Íslands og segir bara að þetta hafi verið lög sem voru sett á árið 2019. Þetta er svona 6,7 prósent hækkun sem eru 141 þúsund hækkun á til dæmis fjármálaráðherra,“ segir Sigmar og minnir á að Katrín hafi samþykkt lögin.
Forsætisráðherra segir fyrirkomulagið gott
Katrín rifjaði upp í samtali við fréttastofu í vikunni að fyrirkomulaginu hefði verið breytt á sínum tíma í kjölfar þess að kjararáð var lagt niður. Fyrirkomulagið tryggi gagnsæi og fyrirsjáanleika og það tryggi að ríkisstjórnin sé aldrei leiðandi í launaþróun. Þar af leiðandi sé fyrirkomulagið mjög gott.
„Gremja almennings er mjög skiljanleg og hún stafar af því að við erum að fást við verðbólgu, hér er hátt vaxtarstig og það er mikilvægasta verkefnið,“ sagði Katrín aðspurð hvort hún skyldi gremju almennings vegna hækkananna.
Hækkunin hefur verið harðlega gagnrýnd, þá sér í lagi vegna þess að ekkert þak er á henni líkt og samið var um hjá öðrum í haust þegar laun hækkuðu almennt ekki meira en um 66 þúsund krónur. Fjármálaráðherra segir um raunlaunalækkun að ræða.
Hækka laun ráðherra en setja ábyrgð á seðlabankastjóra
„það er algjörlega galið ef alþingismenn og ráðherrar ætla í alvöru að hækka laun sín sem þessu nemur og láta eins og ekkert sé og taka ekki ábyrgð,“ heldur Sigmar áfram og segir seðlabankastjóra hafa bent á að ríkisstjórnin þyrfti að sýna aðhald og draga úr kostnaði fyrir kjör landsmanna.
„Ríkisstjórnin kennir seðlabankastjóra um allt og stingur hausnum í sandinn. Ég bara segir það hér og nú og ætla að tala íslensku, þetta eru aumingjar,“ segir Sigmar og telur ráðherra ekki axla ábyrgð.
„Nei nei nei Simmi, þetta verður þú að taka til baka,“ segir Hugi og reynir að malda í móinn.
Samtal þeirra vina má heyra í heild sinni hér.