Meirihluti allsherjar- og menntamálanefndar telur æskilegt að auglýsingadeild Ríkisútvarpsins verði lögð niður en auglýsendur geti pantað auglýsingar í gegnum vef Ríkisútvarpsins, þar sem fyrir liggi verðskrá sem ekki verði veittur afsláttur af. Þetta kom fram í nefndaráliti meirihlutans sem mælt var fyrir á Alþingi í gær.

Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra segir þetta hafa verið í umræðunni í talsverðan tíma.
„Og ég hef lýst þeirri skoðun minni að ég telji að hægt sé að breyta aðferðarfræði auglýsingadeildarinnar. Þetta hef ég rætt við útvarpsstjóra fyrir talsverðum tíma,“ segir Lilja. Verið væri að ganga frá skipan starfshóps undir formennsku Karls Garðarssonar fyrrverandi fjölmiðlamanns og þingmanns Framsóknarflokksins sem fara eigi yfir útfærslu þessara mála.
En Lilja hefur líka boðað frumvarp um heildarstefnumótun um fjölmiðla og segir undirbúning þess ganga vel.

„Það eru ýmsar nýjar tillögur sem koma fram til að styðja við umhverfi fjölmiðla. Ég tel að það lýðræðislega hlutverk sem fjölmiðlar gegna, ekki bara hér á landi heldur alls staðar, sé afar mikilvægt,“ segir ráðherra. Upplýst umræða og aðhald þeirra væri nauðsynleg í lýðræðislegri umræðu. Frumvarpið komi vonandi fram á haustþingi.
Hún segir einnig nauðsynlegt að fjölmiðlar styrktu áskriftartekjur sínar. Þá væri líka unnið að skattalegum breytingum vegna samkeppni viðerlendar efnisveitur.
„Umhverfi fjölmiðla hefur gjörbreyst bara á tíu árum. Vegna þess að auglýsingatekjurnar hafa í auknum mæli verið að renna til erlendra efnisveita. Þess vegna er rekstrarumhverfið erfitt. Vinna sem við erum núna að leggja af stað í með fjármála- og efnahagsráðuneytinu miðar að því að ná betur utan um þetta,“ segir Lilja Alfreðsdóttir.