Það var svo í nótt að fyrsti laxinn fór í gegn en það var 77 sm hrygna. Unnendur Elliðaánna sem gengu meðfram ánni í gær sáu laxa í Efri Móhyl, Teljarastreng og í Sjávarfossi svo það er ekkert ólíklegt að þessi hrygna hafi verið einn af þeim löxum. Fyrstu laxarnir eru ansi fljótir upp ána og gætu verið komnir upp á efri svæðin frá Símastreng og upp í Höfuðhyl þegar veiði hefst. Það er stórstreymt núna svo það má alveg eiga von á því að þessi tala í teljaranum skríði eitthvað upp í dag og nótt og svo auðvitað á hún eftir að hækka hratt næstu 2-3 vikurnar.
Það er hægt að skoða myndband af hrygnunni HÉR en þetta er heimasíða Riverwatcher sem er rekstraraðili og framleiðandi laxateljarans í Elliðaánum og víðar.