Í gær var greint frá því á Vísi að Yana Hryshko frá Kyiv héraði stóð alein úti í rigningunni og mótmælti fyrir utan ræðisskrifstofu Rússlands við Túngötu.
„Í þetta skipti hef ég staðið hér í eina klukkustund. En ég vona að annað fólk sjái mig og komi til að standa með mér. Kannski ekki í dag en ef til vill á morgun, alla vega vona ég það,“ sagði Yana við fréttamann sem rakst á hana fyrir tilviljun.
Yönu varð heldur betur að ósk sinni í kvöld þegar stór hópur fólks kom saman við Túngötu til þess að fagna ákvörðun utanríkisráðherra og sýna samstöðu með Úkraínu í verki.
Myndir af mótmælunum má sjá hér að neðan:



