Rauðagerðismálið átti sér stað þegar fjölskyldufaðirinn Armando Beqirai var myrtur fyrir utan heimili sitt í Rauðagerði í febrúar 2021.
Saksóknari lýsti morðinu á sínum tíma sem aftöku en Beqirai var skotinn níu sinnum. Talið var að málið tengdist uppgjöri í undirheimum.
Fyrirsjáanleg niðurstaða
Angjelin Sterqai var dæmdur í sextán ára fangelsi í Hæstarétti í dag en hann hafði verið dæmdur til tuttugu ára fangelsisvistar í Landsrétti.
Skipaður verjandi hans í málinu segir að niðurstaðan hafi verið nokkuð fyrirsjáanleg. Þegar málskotsbeiðni Angjelins var send Hæstarétti sagði í áliti ríkissaksóknara að hugsanlega hafi skort lagaheimild til að þyngja dóm hans í tuttugu ár.
„Þetta var kannski viðbúið, að það yrði mögulega ekki hærra en sextán ár,“ sagði Oddgeir Einarsson, verjandi Angjelins Sterkaj.
„Skjólstæðingur minn vildi reyndar meina að það væru refsimildunarástæður sem virðist ekki hafa verið fallist á en ég er ekki búinn að lesa dóminn,“ bætti hann við.
Kemst fljótlega í lausagæslu
Mikla athygli vakti þegar þau Claudia Carvalho, Shpetim Qerimi og Murat Selivrada voru sakfelld fyrir samverknað í morðinu og dæmd til fjórtán ára fangelsisvistar í Landsrétti. Hæstiréttur taldi athæfi þeirra hið örlagaríka kvöld hins vegar aðeins falla undir hlutdeild í broti Angelins.
Öll þrjú fengu því mildari dóma hjá Hæstarétti, Claudia fékk þriggja ára dóm, Murat fjögurra og Shpetim tíu ára.
Claudia var ein sakborninga mætt í hæstarétt í dag. Lögmaður hennar segir hana hafa tekið dóminum með jafnaðargeði og að henni sé létt.

„Þetta er náttúrulega betra en að vera dæmdur í fjórtán ára fangelsi,“ sagði Karl Georg Sigurbjörnsson, verjandi Claudiu Carvalho, aðspurður út í niðurstöðuna.
„En maður hefði viljað sjá hana sýknaða vegna þess að ég tel að hún sé saklaus, mér finnst gögnin sýna það,“ sagði hann.
„Hún er búin að sitja af sér eitt ár í gæsluvarðhaldi þannig hún fer líklega að komast í einhvers konar lausagæslu fljótlega. Þetta er betra en dómur Landsréttar sem var leiðréttur núna,“ sagði Karl.