Alfreð Fannar var í góðum gír áður en hann setti humarinn á grillið. „Ég er svo spenntur að ég er kominn með sjóbragð í munninn,“ sagði hann í þættinum.
Hægt er að nálgast klippu úr þættinum og fyrir neðan má sjá uppskriftina og aðferð.
Risa humar
- Risa Rocklobster (hægt að panta hjá Norðanfiski)
- Grillsalt
- Weber seafood blend viðarspænir
- 100g Smjör
- 5 Hvítlauksgeirar
- Steinselja
- 1 msk Chilli
- Sítrónu börkur af einni sítrónu
- Safi úr hálfri sítrónu
- Kyndið grillið i 200 gráður.
- Klippið bakið á humrinum að halanum án þess að fara alla leið í gegn. Fjarlægið görnina, lyftið kjötinu upp og leggið á skelina.
- Stráið grillsalti yfir.
- Setjið humarinn í óbeinan hita.
- Reykið hálfa lúku af viðarspænum á kolin.
- Fín saxið, hvítlauk chilli og steinselju.
- Setjið smjör í pott ásamt hvítlauk, chilli, sítrónuberki og sítrónusafa.
- Bætið steinselju út í pottinn þegar allt hefur bráðnað saman.
- Pennslið humarinn með smjörinu á meðan eldun stendur.
- Berið humarinn fram ásamt smjörinu.