Rúnar vann loksins Heimi eftir þriggja ára bið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. júlí 2023 13:00 Rúnar Kristinsson á hliðarlínunni í gær með Heimi Guðjónsson í baksýn. Vísir/Diego Rúnar Kristinsson tókst að stýra KR til sigurs á móti FH í gær en úrslitin réðust á lokamínútu leiksins eftir að FH hafði klúðrað vítaspyrnu.
Þetta var langþráður sigur hjá Rúnari á móti þjálfara sem hann kannast vel við. Heimir var greinilega mjög pirraður í leikslok því hann skrópaði í viðtöl við fjölmiðla. Þetta var annað tap FH í röð og með þessum sigri á komst KR upp fyrir FH-liðið í töflunni. Það er frábær endurkoma miðað við það að KR tapaði fimm leikjum í röð apríl og maí og var um tíma langt á eftir FH. Rúnar og Heimir Guðjónsson þjálfari FH, þekkjast vel enda jafnaldrar sem komu saman upp um yngri flokka KR á sínum tíma. Heimir var fyrir leikinn í gær búinn að fagna sigri í fimm leikjum í röð á móti liðum Rúnars í efstu deild þar af vann FH 3-0 sigur á KR í fyrri leiknum. Rúnar hafði ekki náð að vinna Heimi síðan þeir mættust í fyrstu umferð Covid-tímabilsins 2020. Sá leikur fór ekki fram fyrr en 13. júní vegna kórónuveirunnar en Heimir var þá að stýra liði Val. KR vann leikinn1-0 þökk sé sigumarki Óskars Arnars Haukssonar. Nú þremur árum og einum mánuði seinna tókst Rúnari loksins að leggja sinn gamla félaga. Á þeim tíma hefur Heimir þjálfað bæði FH og Val. Sigurinn í gærkvöldi var líka einnig aðeins annar sigur Rúnars á móti Heimi í síðustu níu innbyrðis leikjum þeirra í deildinni. Rúnar vann aftur á móti fjóra leiki í röð á móti Heimi frá 2012 til 2013.
KR Besta deild karla FH Mest lesið Skar sig mjög illa á andliti og hálsi í slysi á æfingu Sport Uppgjörið: Valur-Grindavík 75-86 | Grindvíkingar í lykilstöðu Körfubolti Lýsti ástandinu á Ingebrigtsen-heimilinu Sport Uppgjörið: Ísrael - Ísland 21-31 | Íslenska liðið á leið á sitt þriðja stórmót í röð Handbolti Uppgjör: Tindastóll-Keflavík 100-75 | Stólarnir sópuðu Keflvíkingum í sumarfrí Körfubolti Svona verður enski boltinn á Stöð 2 Sport Enski boltinn Onana gaf tvö mörk og United missti af sigri í blálokin Fótbolti Steinunn hætt í landsliðinu Handbolti Arnar spilaði með besta „pöbbaliði“ Bretlands Enski boltinn Þetta gæti verið best klæddi þjálfari heims Fótbolti Fleiri fréttir Elín Metta má spila með Val Fyndnar hárgreiðslur lykillinn að betri mætingu Besta-spáin 2025: Loftið verður að haldast í blöðrunni Besta spáin 2025: Krókur á móti bragði „Þið eruð ekki nógu duglegar að tuða í dómurunum“ Besta-spáin 2025: Þurfa aftur fimm réttar og jóker Besta-spáin 2025: Stoppa stutt við eftir langa eyðimerkurgöngu Aron Elís með slitið krossband Aron í tveggja leikja bann Stúkan segir ekki rautt og framkvæmdastjórinn æfur: „Má leggja hana niður“ Stórir draumar í Laugardalnum: „Allir vilja að Þróttur fari sem hæst“ „Vælum og öskrum þó við meiðum okkur ekki neitt“ Sjáðu markið umdeilda í Garðabæ: „Ekki var hann hræddur við Örvar?“ „Bæði svekktur en líka stoltur“ „Verðum bara að vona það besta en undirbúa okkur fyrir það versta“ „Ég tek þetta bara á mig“ Uppgjörið: Stjarnan - FH 2-1 | Stjarnan slapp með sigur úr grannaslagnum Glórulaus tækling Gylfa Þórs Uppgjörið: Víkingur - ÍBV 2-0 | Gylfi Þór sá rautt í sannfærandi sigri LUÍH: Var gerð að fyrirliða Þróttar átján ára Tveir Bestu deildarslagir og bikarmeistararnir mæta KFA Sjáðu glæsimark Rúnars Más og skrautlegt sjálfsmark á Hlíðarenda „Sá það strax að boltinn myndi enda inni“ Uppgjörið: Fram - ÍA 0-1 | Stórglæsilegt mark Rúnars Más tryggði Skagamönnum sigurinn gegn Fram „Ekki fyrsta stóra ákvörðunin sem hann tekur á móti mínu liði á þessum velli“ Uppgjörið: KA - KR 2-2 | Tvö rauð á KR í markaleik á Akureyri „Stundum þá skapar maður bara sína eigin heppni með alvöru vinnuframlagi“ Uppgjörið: Valur - Vestri 1-1 | Óvænt stig Djúpmanna á Hlíðarenda Blikar byrjuðu vel með græna nögl á litla fingri Sjáðu fyrstu mörk Íslandsmótsins í ár: Var þetta víti? Sjá meira