„Við komum hérna í hitt í fyrra og þá kostaði 1200 krónur að fara ofan í. Nú kostar það 3800 krónur. Þetta er 300 prósent hækkun,“ segir Óskar Óskarsson, sem ætlaði sér að heimsækja laugina í dag ásamt eiginkonu sinni og barni.
Eiginkona hans, Kristín Ragnhildur Sigurðardóttir, vakti athygli á hækkuninni inni á Facebook hópnum Fjármálatips í dag. Færslan hefur vakið mikla athygli.
Ekki margir á ferð
„Ég kíkti yfir grindverkið og ég sá ekki betur en að þarna væru bara tvær hræður og það á sunnudegi. Ég hugsaði með mér að við værum ekki ein um það að hafa hætt við að fara vegna þessa verðs,“ segir Óskar.
Laugin í Húsafelli var endurnýjuð í vetur og hefur nú hlotið nafnið Lindin. Skessuhorn greindi frá því þegar hún opnaði aftur í maí en í frétt miðilsins kom fram að aðstaða í sundlaugarhúsi hefði verið bætt sem og útisvæðið við laugina. Er lauginni ætlað að þjóna hótelgestum á Húsafelli en einnig vera opin almenningi.
Hjónin segja að sér þyki afar leitt hve hátt verð sé tekið af almennum sundlaugargestum. Þetta hafi verið þeirra uppáhalds sundlaug í gegnum árin sem þau hafi heimsótt reglulega.
„Þegar maður er með fjölskyldu þá er þetta alltof mikið. Ég velti bara fyrir mér hvort það sé verið að láta almenning á Íslandi, eða alla vega túristana, borga Covid reikninginn?“ spyr Óskar.
„Hvernig verður þetta á næsta ári? Eða á þarnæsta ári? Hvert er verðlagið hérna á Íslandi að fara? Svo mæta einhverjir hagfræðingar og menntaðir bisness gúrúar og bulla og rugla í tíma og ótíma um að verðbólgan sé að lækka. Þetta bendir ekki til þess.“

Segir um að ræða ódýrustu afþreyingarlaug landsins
Unnar Bergþórsson, framkvæmdarstjóri Hótel Húsafells, rekstraraðila Lindarinnar, segir í skriflegu svari til Vísis að sundlaugin sé einkarekin. Hún fái þannig engar niðurgreiðslur frá sveitarfélaginu eða öðrum.
„Sundlaugin var rekin með sama sniði í tugi ára og var orðin ansi lúin og innviðir úr sér gengnir svo ekki var hægt að halda rekstri áfram með óbreyttu sniði. Eigendur ákváðu því að fara í gagngerar endurbætur og breyta aðstöðu úr sundlaug í afþreyingarlaug eins og eru víðsvegar hringinn í kringum landið og auka upplifun og gæði.“
Hann segir framkvæmdir hafa tekið rúmlega eitt ár og kostað vel á annað hundrað milljónir. Allir innviðir séu nýir og eins og best verður á kosið, laugar endurbættar, aðstöðuhús og klefar endurbættur frá grunni í stíl við gæði Hótel Húsafells, auk þess sem bætt hefur verið við gufubaði og köldum pottum.
„Nú þegar Lindin, ný afþreyingar laug á Húsafelli hefur verið opnuð er hún ódýrasta afþreyingarlaug landsins. Ekki er eðlilegt að bera saman sundlaugar reknar af opinberum aðilum.“
Þá sé gestum boðið upp á 5 til 20 skipta kort og með afslætti sem sé á bilinu 30 til 55 prósent sé verð fyrir hvert skiptið komið í 2090 krónur. Gestum hótels og tjaldsvæða sé auk þess boðinn afsláttur í margskonar formi, sem ekki þekkist í öðrum afþreyingarlaugum.
Fréttin hefur verið uppfærð með svörum rekstraraðila Lindarinnar í Húsafelli.