Matur

BBQ kóngurinn: Sturlaður hamborgari

Boði Logason skrifar
BBQ kóngurinn er á dagskrá alla fimmtudaga á Stöð 2 klukkan 18:55
BBQ kóngurinn er á dagskrá alla fimmtudaga á Stöð 2 klukkan 18:55 Stöð 2

Í sjötta þætti af BBQ kónginum grillar Alfreð Fannar meðal annars sturlaðan hamborgara með beikonsultu og ostasósu.

„Þetta er eitthvað annað, þessi sósa er geggjuð. Þetta er rosalegt!“ sagði Alferð Fannar meðal annars um hamborgarann.

Sjá má brot úr þættinum hér og fyrir neðan má sjá uppskriftina.

Klippa: BBQ kóngurinn: Sturlaður hamborgari

Hamborgari

  • 75/25 hakk (fæst í Kjötkompaní)
  • HMB krydd (fæst á bbqkongurinn.is)
  • 2 Sneiðar jurtaostur og hvern hamborgara
  • Hamborgarabrauð
  • Salat
  • Mótið 150g hamborgara í höndunum og kryddið vel með HMB.
  • Steikið hamborgarann á sjóðandi heitu grillii og setjið ostinn á.
  • Hitið hamborgarabrauðið á grillinu.
  • Setjið létta sósu, salat, hamborgara og beikon jalapeno sultu á hamborgarann.
  • Hellið ostasósunni yfir tilbúinn hamborgarann og njótið.

Beikon jalapeno sulta

  • 400g Kirsuberjatómatar úr dós
  • 400g Sykur
  • 400g Beikon
  • Jalapeno
  • Setjið pottjárnspott á miðlungsheitt grill
  • Hellið tómötum og sykri út í pottinn og sjóðið í nokkrar mín.
  • Takið pottinn af grillinu.
  • Grillið beikon þar til stökkt og skrerið í smáa bita. Bætið beikoninu út í pottinn.
  • Skerið jalapeno smátt og bætið í pottinn. Blandið vel saman.

Ostasósa

  • 70g Smjör
  • 2msk Hveiti
  • 200ml Einstök pale ale
  • 2msk Rjómaostur
  • 1 Poki Cheddar ostur
  • Setjið pottjárnspott á grillið í miðlungshita.
  • Bætið við smjöri og hveiti og eldið í 5 - 10 mínútur.
  • Bætið bjór út í og leygið honum að hitna.
  • Bætið rjómaosti út í og þegar hann hefur bráðnað setjið þið cheddar ostinn út í í skrefum.

Létt sósa

  • 1dl Mæjónes
  • 1tsk Pipar
  • 2tsk Hvítlauksduft
  • 1tsk Laukduft
  • Blandið öllum hráefnunum saman í skál.







×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.