Bragi og Guðni Freyr urðu Íslandsmeistarar í AB-varahlutaflokknum, flokki aflminni bíla, fyrir tíu árum síðan og af því tilefni ákváðu þeir að rifja upp gamla takta og skráðu sig í Ljómarallið sem fór fram í Skagafirði um síðustu helgi.
Það fór þó ekki betur en svo að snemma á fyrstu sérleið kárnaði gamanið, Bragi missti stjórn á bílnum með þeim afleiðingum að hann endaði utan vegar og í á sem lá meðfram veginum.
„Ég var augljóslega að keyra of hratt, þetta gerist bara nokkra kílómetra inn á fyrstu sérleið keppninnar sem lá um Mælifellsdal,“ segir Bragi í samtali við Vísi. „Ég vissi vel um þessa beygju og hélt að ég gæti tekið hana í þriðja gír, svo var ekki. Ég fer upp í kanntinn hægra megin og upp á tvö hjól, hafði ég reynt að taka vinstri beygjuna hefðum við oltið ofan í ánna, þannig þetta var allavegana skárra.“
Búið var að koma fyrir upptökubúnaði í bílnum og því voru aðdragandinn að útafkeyrslunni sem og viðbrögð þeirra félaga fest á filmu.
Bragi hefur deilt uppákomunni á samfélagsmiðlum. Klippan hefur vægast sagt vakið mikla athygli og þá kannski sér í lagi vegna samskipta þeirra Braga og Guðna þegar staðan rennur upp fyrir þeim og þeir sitja í bíl sínum í miðri á.

„Erum við ekki bara stopp eða?“ spyr Guðni eftir að bíll hans og Braga staðnæmist í ánni og mátti heyra á Braga að honum fannst spurning Guðna ansi sérkennileg í ljósi aðstæðna:
„Jú við erum út í á sko,“ var svar Braga við spurningu Guðna en myndband af atvikinu sem og viðbrögðum þeirra Guðna og Braga má sjá hér fyrir neðan.
Geta má þess að félagarnir sluppu án teljandi meiðsla frá þessum hremmingum enda öryggisstaðlarnir í kringum svona rallakstur með eindæmum góðir.