Matur

BBQ kóngurinn: Þriggja hæða steikarsamloka

Boði Logason skrifar
Alfreð Fannar brá út af vananum í sjöunda þætti af BBQ kónginum og grillaði í fjörunni í Grindavík.
Alfreð Fannar brá út af vananum í sjöunda þætti af BBQ kónginum og grillaði í fjörunni í Grindavík. Stöð 2

Í sjöunda þætti af BBQ kónginum grillaði Alfreð Fannar Björnsson svakalega þriggja hæða steikarsamloku með lauk, sveppum, osti og sterkri sósu. 

„Þetta er alveg geggjað, þið verðið að prufa þetta,“ sagði Alfreð Fannar meðal annars í þættinum.

Sjá má brot úr þættinum hér og fyrir neðan má sjá uppskriftina.

Klippa: BBQ kóngurinn: Þriggja hæða steikarsamloka

Þriggja hæða steikarsamloka

  • 500g picanha steik þunnt skorin (fæst í Kjötkompaní)
  • Grillsalt (fæst á bbqkongurinn.is)
  • Hálfur laukur
  • 5 Sveppir
  • 2msk Smjör
  • SPG krydd (fæst á bbqkongurinn.is)
  • Hamborgara ostur
  • Habanero hot sauce (fæst á bbqkongurinn.is)
  • Súrdeigsbrauð

Aðferð

  • Smjörsteikið lauk og sveppi og kryddið með SPG.
  • Kyndið grillið í botn.
  • Saltið Picanha og steikið þar til fitan er farin að bráðna vel.
  • Skerið súrdeigsbrauð og rétt svo grillið svo brauðið fái smá lit.
  • Raðið saman steikarlokunni með kjöti, sveppum, lauk osti og hot sauce. Endurtakið þrisvar sinnum eða eins oft og þið þorið.







×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.