Mikið hefur verið fjallað um útlendingamál eftir að hópur fólks var þjónustusviptur í samræmi við ný útlendingalög Jóns Gunnarssonar. Greint hefur verið frá því að hælisleitendur búi ýmist í kúlutjöldum í Öskjuhlíð eða í gjótu rétt fyrir utan Reykjavík. Þá hefur verið greint frá því að fólk sé komið á götuna og borði upp úr ruslatunnum höfðuborgarsvæðisins.
Ágreiningur er uppi meðal ráðuneyta og sveitarfélaga um það hver beri ábyrgð á því að veita fólkinu þjónustu.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, ræddi málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld. Hann segir verkefnið núna vera að finna leiðir og lausnir til þess að tryggja fólkinu lágmarksþjónustu sem það eigi rétt á samkvæmt stjórnarskrá og lögum um félagsþjónustu.
„Það er alveg skýrt að það var vilji meirihluta Alþingis og kemur fram í nefndaráliti allsherjar og menntamálanefndar þegar málið var þar til umfjöllunar. Þannig að þetta er verkefnið og það er það sem við þurfum að leysa, ríki og sveitarfélög í sameiningu,“ segir Guðmundur Ingi.
Greinilegar brotalamir í framkvæmdinni
Guðmundur Ingi segir að nauðsynlegt sé að leysa verkefnið sem allra fyrst. Greinilegar brotalamir séu í framkvæmdinni. Það sé eitthvað sem hægt er að laga og að stjórnvöld muni leggja sig fram við að gera það. Þess vegna séu fleiri ráðuneyti að koma að borðinu og nauðsynlegt sé að fá sveitarfélögin að borðinu líka.
„Við skulum leyfa lögfræðingunum að deila um það nákvæmlega hvar ábyrgðin liggur. En ábyrgðin fyrst og fremst í mínum huga er sú að tryggja lágmarksþjónustu til fólks, sem það á rétt á.“
Auðvitað ekki gott að fólk borði upp úr ruslatunnum
En hvað á að gera fyrir fólk sem er nú þegar á götunni?
„Auðvitað er ekki gott að horfa upp á að fólk sófi í gjótum eða að borða mat upp úr ruslatunnum, það er ekki samfélag sem við viljum. Það er hluti af því að leita lausna núna, að finna lausn á því hvernig megi mæta þessari lágmarksþjónustu, sem er alveg skýrt að fólk á rétt á,“ segir Guðmundur Ingi.
Hann á fund með Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra og fulltrúm sveitarfélaganna á föstudag.
„Ég biðla auðvitað til þeirra að við náum að vinna þetta mál í sameiningu og leysa það.“