Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Neytendastofu. Þar segir að stofan hafi gert skoðun á ástandi verðmerkinga hjá verslunum í Skeifunni í lok maí.
Farið var í 45 verslanir og gerð athugun á hvort söluvörur væru verðmerktar auk þess sem skoðað var sérstaklega hvort verðmerkingar væru sýnilegar á útstillingum, til dæmis í sýningargluggum.
Í fyrri heimsóknum voru gerðar athugasemdir við fjórtán verslanir sem bæta þurftu verðmerkingar. Skoðuninni var fylgt eftir hjá þessum fjórtán fyrirtækjum og höfðu tíu þeirra bætt úr verðmerkingum til samræmis við athugasemdir stofnunarinnar þannig að ekki reyndist tilefni til frekari aðgerða.
Hjá verslunum 66°Norður, Hagkaups og Kulda vantaði verðmerkingar á ýmsar vörur í verslun við seinni heimsókn. Þá vantaði verðmerkingar á útstillingar hjá Herralagernum og 66°Norður. Hafa umræddar verslanir því nú verið sektaðar fyrir ófullnægjandi verðmerkingar.